- Actavis Group óskar eftir afskráningu úr Kauphöll


Reykjavík, 26. júlí, 2007.  Yfirtökutilboð Novator eignarhaldsfélags ehf. til
hluthafa Actavis Group hf. rann út kl. 16:00 miðvikudaginn 18 júlí 2007. Í
kjölfar greiðslu samkvæmt tilboðinu fer Novator eignarhaldsfélag ehf. með um
99.6% af atkvæðisrétti og hlutum útgefnum í A flokki hlutafjár Actavis Group
hf. 

Í samræmi við ofangreint uppfyllir Actavis Group hf. ekki lengur kröfur sem
gerðar eru um dreifða eignaraðild hlutafjár samkvæmt reglum um útgefendur
verðbréfa sem gefnar eru út af OMX Nordic Exchange Iceland hf. 

Af því tilefni hefur stjórn Actavis Group hf. óskað eftir því við stjórn OMX
Nordic Exchange Iceland hf. að hlutir í A flokki hlutafjár Actavis Group hf.
verði afskráðir úr OMX eins fljótt og auðið er. 

 
Nánari upplýsingar veitir:
Árni Harðarson, í síma 550-3300/840 7462 
netfang:  ahardarson@actavis.com