Niðurstöður kauptilboðs 365 hf. til hluthafa


Kauptilboð 365 hf. til hluthafa félagsins um kaup á bréfum hluthafa á genginu
1,20 kr., í tengslum við fyrirhugaða afskráningu félagsins, lauk í dag, 11.
júlí kl. 16.00. Eigendur um 7% hlutafjár í 365 hf., eða um 165 aðilar,
samþykktu kauptilboðið. Eigendur um 93% hlutafjár (þar af 2% í eigin bréfum
félagsins) munu því eiga hluti sína áfram í félaginu eftir fyrirhugaða
afskráningu þess. 

Straumur fjárfestingafélag mun annast greiðslu til þeirra hluthafa sem tóku
tilboði félagsins. Hluthafar munu fá andvirði bréfanna greitt á reikninga sína
fyrir 1. ágúst næstkomandi.

Nánari upplýsingar veitir: 

Hildur Sverrisdóttir
regluvörður 365 hf. 
s. 849-2491
hildurs@365.is