Tilboð til hluthafa 365 hf. opnað að nýju til miðvikudagsins 23. júlí 2008 kl. 16.00


Vegna fyrirhugaðrar afskráningar 365 hf. af skipulegum verðbréfamarkaði er
hluthöfum 365 hf. gert tilboð um að selja hlutabréf sín í félaginu á gengi 1,20
kr. á hvern hlut. Tilboðið gilti til 11. júlí síðastliðinn en ákveðið hefur
verið að opna það að nýju og mun tilboðið vera opið til kl. 16.00 þann 23. júlí
næstkomandi. 

Þeir hluthafar sem hafa ekki hug á að taka tilboðinu halda ósjálfrátt áfram sem
hluthafar í óskráðu félagi 365. 

Tilboðið er lagt fram á grundvelli nánari skilmála sem koma fram í bréfi sem
sent var til hluthafa 3. júlí síðastliðinn. Í bréfinu eru einnig leiðbeiningar
um tilboðið ásamt notandanafni og lykilorði, sem hluthafi verður að nota til að
taka þátt í tilboðinu. Ef bréfið hefur ekki borist hluthafa skal hafa samband
við 365 í síma 512 5000, þar sem eru veittar allar upplýsingar. 

Allar nánari upplýsingar veitir Hildur Sverrisdóttir, regluvörður 365 hf., í s.
512-5000 eða í netfangi: hildurs@365.is