- 6 mánaða uppgjör 2008


Hagnaður SORPU b.s. fyrstu sex mánuði ársins nam tæpum 19 millj.kr. en var 64,8
millj.kr. fyrir sama tímabil árið áður. Hagnaður fyrir fjármagnsliði og
afskriftir nam 93,4 millj.kr. en var 44,9 millj. fyrir sama tímabil á árinu
2007. Rekstrartekjur samlagsins námu 992,3 millj.kr. á tímabilinu samanborið
við 945,7 millj.kr. árið 2007 sem er 4,93% hækkun. Rekstrargjöld, án afskrifta
og fjármagnsliða voru 839,0 millj.kr. samanborið við 841,5 millj.kr. 2007 en
lækkunin nemur tæpum 0,4%. 

Heildareignir samlagsins 30. júní 2008 námu 1.916,7 millj.kr. og heildarskuldir
797,1 millj.kr. Eigið fé í lok tímabilsins var 1119,6 millj.kr. og hafði aukist
um tæpar 21 millj.kr. frá því í upphafi árs.Eiginfjárhlutfall var um 58,4 % en
var í lok síðasta árs 60,2%. 

Handbært fé frá rekstri var á tímabilinu 2008 285,1 millj.kr. en var fyrir sama
tímabil árið áður 100,8 millj.kr. Veltufjárhlutfall í júnílok 2008 var 1,37 og
handbært fé nam um 367 millj.kr. Fjárfestingarhreyfingar voru um 138 millj.kr.
og fjármögnunarhreyfingar 42 millj.kr.

Attachments

arshlutareikningur 30 06 2008.pdf sorpa bs  frettatilkynning 25 agust  2008.pdf