- Tilkynning vegna verðbréfa útgefnum af Milestone ehf.


Fall bankakerfisins á Íslandi og erfiðeikar á fjármálamörkuðum í heiminum hafa
haft umtalsverð áhrif á efnahag Milestone eins og annarra fyrirtækja á Íslandi.
Milestone á nú í viðræðum við stærsta lánveitanda sinn, Glitnir, um
fjárhagslega endurskipulagningu á félaginu. 

Milestone ehf. er útgefandi eftirfarandi markaðsbréfa sem voru á gjalddaga í
október: MILE 08 1026. Vegna ofangreindra aðstæðna voru markaðsbréfin ekki
greidd á gjalddaga. Unnið er að fjárhagslegri endurskipulagningu og af hálfu
félagsins er að því stefnt, að niðurstaða náist innan fárra vikna í samstarfi
við lánadrottna félagsins. 

Nánari upplýsingar veitir:
Guðmundur Ólason forstjóri Milestone ehf.
Sími 414 1800