Starfsemi SPRON aðlöguð að breyttum aðstæðum


Undanfarna mánuði hefur verið unnið að endurskipulagningu á starfsemi SPRON til
þess að mæta breyttum aðstæðum í íslensku efnahagslífi.    Meginmarkmið
breytinganna er að auka hagræðingu í rekstri og mæta þeim tekjusamdrætti sem
fyrirsjáanlegur er næstu misserin.  Nauðsynlegt er að bregðast við breyttu
rekstrarumhverfi nú og eru aðgerðirnar óháðar áformum um sameiningu SPRON,
Sparisjóðsins í Keflavík og Byrs en munu styðja við þau áform. 

Nýtt skipurit

Breytingar hafa verið gerðar á skipuriti SPRON með það fyrir augum að einfalda
skipulag félagsins. Sviðum félagsins hefur verið fækkað í tvö, SPRON sparisjóð
og fjárhagssvið. 

Aðrar helstu breytingar á skipulagi félagsins er að fjárstýring verður lögð
niður sem sérstakt svið og starfsemi þess færð undir Fjárhagssvið.  Ósvaldur
Knudsen 
framkvæmdastjóri fjárstýringar verður með breytingunni nú forstöðumaður
fjárstýringar. Áhættustýring verður ennfremur færð undir Fjárhagssvið og verður
Páll Árnason áfram forstöðumaður áhættustýringar. Valgeir M. Baldursson er
framkvæmdastjóri fjárhagssviðs. 

Þjónustusvið verður lagt niður og hluti starfseminnar færð undir Mannauð og
rekstur og hluti undir SPRON sparisjóð. Harpa Gunnarsdóttir verður
framkvæmdastjóri Mannauðs og reksturs en hún var framkvæmdastjóri þjónustusviðs
áður.  Ólafur Haraldsson verður framkvæmdastjóri SPRON sparisjóðs eins og áður. 

Upplýsingatæknisvið verður lagt niður og verða verkefni sviðsins færð undir
Mannauð og rekstur að hluta og SPRON sparisjóð að hluta.  Ólafur Haraldsson
framkvæmdastjóri SPRON sparisjóðs gegndi stöðu framkvæmdastjóra
upplýsingatæknisviðs fyrir breytingarnar. 

Starfsemi Netbankans verður óbreytt en Geir Þórðarson framkvæmdastjóri
Netbankans mun hætta hjá Netbankanum samhliða þessum breytingum og hefja störf
hjá SPRON sparisjóði. Sævar Þórisson tekur við starfi framkvæmdastjóra
Netbankans en hann var áður markaðsstjóri Netbankans. 

Unnið er að endurskoðun á starfsemi Frjálsa fjárfestingabankans og SPRON
verðbréfa með það að markmiði að ná fram frekari hagræðingu með samþættingu
verkefna milli félaganna og SPRON. Kristinn Bjarnason er framkvæmdastjóri
Frjálsa Fjárfestingabankans og Björg Kristinsdóttir er framkvæmdastjóri SPRON
verðbréfa. 

Útibú SPRON í Skeifunni og Borgartúni sameinuð, stöðugildum fækkað og laun
lækkuð 

Við breytingarnar verður útibúi SPRON í Skeifunni lokað og starfsemi þess færð
í útibú SPRON í Borgartúni.  Útibú SPRON verða sex eftir breytingarnar.
Stöðugildum fækkar um 10 og verða starfsmenn SPRON nú 190.  Til þess að
lágmarka fjölda uppsagna var samið um lækkun starfshlutfalls við nokkra
starfsmenn og yfirvinna og hlunnindi lágmörkuð. 

Stefnt er að allt að 50% lækkun rekstrarkostnaðar á árinu 2009 frá fyrra ári og
verið er að endurskoða alla kostnaðarliði til lækkunar en m.a. hefur verið
samið um lækkun launa við þá starfsmenn sem eru með laun yfir 450 þúsund
krónur.  Lækkunin mun nema á  bilinu 10-30% og fer stighækkandi eftir því sem
launin eru hærri. 

Guðmundur Hauksson forstjóri:
“Ljóst er að með vaxandi efnahagsþrengingum munu verkefni banka og sparisjóða
breytast og tekjumöguleikar þeirra dragast verulega saman næstu misserin.
Endurskipulagning á starfsemi SPRON nú er því óhjákvæmileg til þess að mæta
breyttum aðstæðum og óháð því hvort af sameiningu við Sparisjóðinn í Keflavík
og Byr verður eða ekki.” 

Fréttatilkynningin í heild sinni er í viðhengi. 

Frekari upplýsingar veitir: 
Jóna Ann Pétursdóttir forstöðumaður samskipta, sími 550 1771/840 8225.

Attachments

frettatilkynning 280108.pdf