Niðurstöður hluthafafundar Landic Property haldinn 29. júní 2009


Hluthafafundur Landic Property hf. var haldinn í dag 29. júní 2009. 

Breyting á dagskrá fundarins var samþykkt, þannig að ein tillaga um breytingu
á samþykktum félagsins var lögð fram og samþykkt: 
Tillaga um að aðalfundi skuli halda fyrir lok ágústmánaðar ár hvert.

Nýr stjórnarmaður var kosinn í stjórn félagsins, Gunnar Jónsson, og er stjórn
Landic Property hf. þá nú skipuð Hermanni Hermannssyni, Klemens Arnarsyni,
Eiríki S. Jóhannssyni og Þórarni V. Þórarinssyni ásamt Gunnari Jónssyni.