Bakkavör Group hf. veitt heimild til að leita nauðasamnings við kröfuhafa


Bakkavör Group hf. hefur verið veitt heimild til að leita nauðasamnings við
kröfuhafa sína í samræmi við fyrri tilkynningu félagsins í dag, 18. janúar
2010, en kröfuhafar sem hafa yfir um 80% af skuldum félagsins að ráða hafa mælt
með nauðasamningi. Brynjar Níelsson hefur verið skipaður umsjónarmaður með
nauðasamningsumleitunum félagsins.