Gjalddagi á skuldabréfaflokki ESSO 05 11


Tilkynnt var 5. apríl 2011 að drög að samkomulagi væri komið á vegna fjárhagslegrar endurskipulagningar N1 hf.  Nú liggur fyrir samþykki allra kröfuhafa sem eiga skuldabréf í skuldabréfaflokknum ESSO 05 11 um að þeir fái gerðar upp kröfur sínar með nýju hlutafé í N1 hf.

Framangreint samkomulag lánardrottna N1 hf. gerir meðal annars ráð fyrir að lánardrottnar taki yfir rekstur N1 hf  sem lið í uppgjöri á skuldum N1 hf. og Umtaks fasteignafélags ehf.  Lánardrottnar skuldbinda sig til þess að breyta stórum hluta krafna sinna í hlutafé og styrkja þannig efnahag N1 hf.
 

Reiknað er með að vinnu við fjárhagslega endurskipulagningu ljúki formlega á miðju þessu ári og frestast útgáfa ársreiknings vegna rekstrarársins 2010 þar til í lok júní af þessum sökum.

  

Allar upplýsingar veitir Hermann Guðmundsson forstjóri N1 í síma 440 1000.