CCP - Tilkynning um uppgreiðslu og afskráningu á skuldabréfaflokki


CCP hf. („útgefandinn“) tilkynnir hér með að félagið hefur nýtt rétt sinn samkvæmt grein 7.2 í kafla II útgáfulýsingar dags. 18. júní 2013 („útgáfulýsingin“) til valfrjálsrar uppgreiðslu á eftirtöldu skuldabréfi:

 

  • CCP 12 1, ISIN nr. IS0000021962

 

Þann 28. apríl 2015 endurgreiddi útgefandinn hverjum og einum skuldabréfaeigenda að fullu. Þar sem búið er að greiða skuldabréfin að fullu, og endurheimta þau frá þáverandi skuldabréfaeigendum, hefur útgefandinn óskað eftir því við Verðbréfaskráningu Íslands að skuldabréfin verði afskráð. Eftir slíka afskráningu verður óskað eftir því að skuldabréfin verði tekin af markaði Nasdaq OMX Iceland hf.

 

Vísað er í skilmála skuldabréfaflokksins hvað skilgreind hugtök í tilkynningu þessari varðar.

 

Frekar upplýsingar veitir Sigurður Stefánsson, fjármálastjóri CCP hf., í gegnum netfangið siggi@ccpgames.com eða í síma +354 540 9100.