Spölur - Ársuppgjör 1. janúar 2015 til 31. desember 2015


  • Hagnaður Spalar ehf eftir skatta fyrir tímabilið 1. janúar 2015 til 31. desember 2015 nam 461 mkr., hagnaður á rekstrarárinu 1. janúar 2014 til 31. desember 2014 nam 445 mkr. Hagnaður Spalar ehf eftir skatta á fjórða ársfjórðungi félagsins sem er 1. október 2015 til 31. desember 2015 nam 72 mkr. en á sama tíma árið á undan nam hagnaður félagsins 56 mkr. Spölur er að fullu í eigu Eignarhaldsfélagsins Spalar hf.

 

  • Greiðsluflæðið gefur betri mynd af gangi félagsins þar sem verðbætur vegna vísitöluhækkana lána dreifast til greiðslu fram til loka lánstímans, þ.e. 2018. Greiðslugeta félagsins undanfarin 5 ár hefur verið sterk. Um 700 mkr. (2014:643 mkr.) voru greiddar í afborganir og vexti á tímabilinu og nauðsynlegt umframfjármagn var að auki til staðar 31. desember 2015 eins og lánasamningar gera ráð fyrir.

 

  • Veggjald ársins nam 1.197 mkr. til samanburðar við 1.136 mkr. árið áður sem er 5,3 % hækkun.

 

  • Rekstrarkostnaður Spalar ehf án afskrifta fyrir tímabilið 1. janúar 2015 til 31.desember 2015 nam 387 mkr. og hækkar um rúma 52 mkr frá árinu áður þegar hann nam 335 mkr. Helsta breytingin er vegna aukins viðhaldskostnaðar og kjarasamningsbundinna hækkunar á launum.
     
  • Afskriftir á árinu námu samtals 124 mkr. og voru á sama tímabili árið áður 121 mkr.

 

  • Fjármunatekjur og fjármagnsgjöld lækka á milli ára um 15 mkr.

 

  • Skuldir Spalar ehf lækka úr 3.101 mkr. þann 31. desember 2014 í 2.646 mkr. þann 31. desember 2015.

 

Um uppgjörið

Gylfi Þórðarson, framkvæmdastjóri Spalar, segir að umferð og tekjur séu heldur meiri en áætlanir félagsins gerðu ráð fyrir.

Tímabilið frá 1. janúar 2015 til 31. desember 2015 er sautjánda fjárhagsár félagsins. Á þessu tímabili fóru 2.048 þúsund ökutæki um göngin sem greiddu veggjald sem er um 5,65% aukning frá sama tímabili árið áður. Þessi fjöldi samsvarar því að um 5.612 ökutæki hafi farið um göngin að meðaltali dag hvern.

Meðaltekjur fyrir hverja ferð um göngin hafa lækkað.

_________________________________________________________________________________________________

Nánari upplýsingar veitir Gylfi Þórðarson, framkvæmdastjóri Spalar ehf, í síma 433 5910.

 


Attachments

Spölur ehf ársreikn.  2015.pdf Spölur ehf fréttatilk. 26.02.16.pdf