Spölur - Ársuppgjör 1. janúar 2016 til 31. desember 2016


 

  • Hagnaður Spalar ehf eftir skatta fyrir tímabilið 1. janúar 2016 til 31. desember 2016 nam 635 mkr., hagnaður á rekstrarárinu 1. janúar 2015 til 31. desember 2015 nam 461 mkr. Hagnaður Spalar ehf eftir skatta á fjórða ársfjórðungi félagsins sem er 1. október 2016 til 31. desember 2016 nam 114 mkr. en á sama tíma árið á undan nam hagnaður félagsins 72 mkr. Spölur er að fullu í eigu Eignarhaldsfélagsins Spalar hf. 
  • Greiðsluflæðið gefur betri mynd af gangi félagsins þar sem verðbætur vegna vísitöluhækkana lána dreifast til greiðslu fram til loka lánstímans, þ.e. 2018. Greiðslugeta félagsins undanfarin 5 ár hefur verið sterk. Um 815 mkr. (2015:700 mkr.) voru greiddar í afborganir og vexti á tímabilinu og nauðsynlegt umframfjármagn var að auki til staðar 31. desember 2016 eins og lánasamningar gera ráð fyrir.
  • Veggjald ársins nam 1.405 mkr. til samanburðar við 1.197 mkr. árið áður sem er 17,4 % hækkun.
  • Rekstrarkostnaður Spalar ehf án afskrifta fyrir tímabilið 1. janúar 2016 til 31.desember 2016 nam 422 mkr. og hækkar um rúma 35 mkr frá árinu áður þegar hann nam mkr. 387. Helsta breytingin er vegna aukins viðhaldskostnaðar.
  • Afskriftir á árinu námu samtals 123 mkr. og voru á sama tímabili árið áður 124 mkr.
  • Fjármunatekjur og fjármagnsgjöld lækka á milli ára um 43 mkr.
  • Skuldir Spalar ehf lækka úr 2.646 mkr. þann 31. desember 2015 í 2.053 mkr. þann 31. desember 2016.

 

Um uppgjörið

Gylfi Þórðarson, framkvæmdastjóri Spalar, segir að umferð og tekjur séu heldur meiri en áætlanir félagsins gerðu ráð fyrir. Tímabilið frá 1. janúar 2016 til 31. desember 2016 er átjánda fjárhagsár félagsins. Á þessu tímabili fóru 2.356 þúsund ökutæki um göngin sem greiddu veggjald sem er um 15% aukning frá sama tímabili árið áður. Þessi fjöldi samsvarar því að um 6.436 ökutæki hafi farið um göngin að meðaltali dag hvern. Meðaltekjur fyrir hverja ferð um göngin hafa hækkað um 2,7% frá fyrra ári.

_________________________________________________________________________________________________

Nánari upplýsingar veitir Gylfi Þórðarson, framkvæmdastjóri Spalar ehf, í síma 433 5910.


Attachments

Spölur ehf ársreikn 2016.pdf Fréttatilkynning frá Speli ehf 28.02 2017.pdf