Árshlutauppgjör 1. janúar 2017 til 30. júní 2017


  • Hagnaður Spalar ehf eftir skatta fyrir tímabilið 1. janúar 2017 til 30. júní 2017 nam kr. 307,5 m.kr. en hagnaður á tímabilinu 1. janúar 2016 til 30. júní 2016 nam 241,8 m.kr. Hagnaður Spalar ehf eftir skatta á öðrum ársfjórðungi félagsins sem er 1. apríl 2017 til 30. júní 2017 nam 199,4 m.kr. Á sama tíma árið á undan nam hagnaður félagsins 171,4 m.kr.
     
  • Greiðsluflæðið gefur hins vegar betri mynd af gangi félagsins þar sem verðbætur vegna vísitöluhækkana lána dreifast til greiðslu fram til loka lánstímans, þ.e. 2018. Greiðslugeta félagsins undanfarin 5 ár hefur verið sterk. Um 800 mkr. (2015:700 mkr.) voru greiddar í afborganir og vexti á tímabilinu 1. janúar 2016 til 31. desember 2016 og nauðsynlegt umframfjármagn var að auki til staðar 31. desember 2016 eins og lánasamningar gera ráð fyrir.
     
  • Veggjald nam 686,7 m.kr. fyrstu 6 mánuði ársins til samanburðar við 625,3 m.kr. árið áður sem er 9,83% hækkun.
     
  • Rekstrarkostnaður Spalar ehf án afskrifta fyrstu 6 mánuði ársins nam 225 m.kr. og hækkar um rúmar 7 m.kr frá árinu áður þegar hann nam 218 m.kr. Helstu breytingar eru vegna aukins launakostnaðar.
     
  • Afskriftir á tímabilinu námu 62,3 m.kr., og voru á sama tímabili árið áður 60,2 m. kr.
     
  • Vaxtagjöld og verðbætur lækka á milli tímabila um 30,1 m. kr.
     
  • Skuldir Spalar ehf hækka úr 2.053 m.kr. þann 31. desember 2016 í 2.157 m.kr. þann 30. júní 2017.
     
  • Spölur ehf er að fullu í eigu Eignarhaldsfélagsins Spalar hf.

 

Um uppgjörið

Gylfi Þórðarson, framkvæmdastjóri Spalar, segir að umferð og tekjur séu heldur minni en áætlanir fyrir fyrstu 6 mánuði rekstrarársins gerðu ráð fyrir. Gert er ráð fyrir að það sama gildi fyrir árið í heild.

 

Nánari upplýsingar veitir Gylfi Þórðarson, framkvæmdastjóri Spalar ehf, í síma 433 5910.

 


Attachments

Árshlutareikningur Spalar ehf 30.06.2017.pdf Fréttatilkynning frá Speli ehf 30 06 2017.pdf