Viðskiptayfirlit fyrir árið 2017 – Nasdaq Iceland


Reykjavík, föstudagur, 29. desember, 2017 -- Nasdaq (Nasdaq:NDAQ) gefur út reglulega viðskiptayfirlit fyrir kauphallir sínar á Norðurlöndunum og í Eystrasaltsríkjunum.  Dregin hafa verið saman helstu atriði yfir viðskipti á Nasdaq Iceland á liðnu ári, 2017.

Magnús Harðarson, yfirmaður viðskiptasviðs Nasdaq Iceland: „Íslenskur hlutabréfamarkaður styrktist til muna á árinu. Viðskipti hafa ekki verið meiri á hlutabréfamarkaði síðan 2008 og þökk sé losun gjaldeyrishafta í mars sl. varð markaðurinn aftur gjaldgengur í augum erlendra fjárfesta sem tóku aukinn þátt í viðskiptum. Þá tilkynnti FTSE Russell vísitölufyrirtækið í september að það væri með til athugunar að hleypa íslenskum félögum í vísitölur sínar að ári liðnu, sem mun enn frekar ýta undir sýnileika íslenska markaðarins á meðal erlendra aðila.“ Stoðir markaðarins voru einnig styrktar með innleiðingu skortsölureglugerðar Evrópusambandsins og gagnsæi aukið með birtingu Nasdaq Iceland á upplýsingum um heildarveðsetningu íslenska hlutabréfamarkaðarins. Framsækið tæknifyrirtæki í grænum hugbúnaðarlausnum, Klappir Grænar Lausnir, var skráð á First North Iceland markaðinn en fjöldi nýskráninga var undir væntingum, sem að stærstum hluta má rekja til umróts í kringum ríkisstjórnarslitin í haust. Við lítum þó björtum augum til næsta árs hvað varðar skráningar á bæði Aðalmarkað og Nasdaq First North.“

Hlutabréf

·         Heildarviðskipti með hlutabréf á árinu námu 632 milljörðum eða 2.527 milljónum á dag.  Þessu til samanburðar var veltan með hlutabréf árið 2016 559 milljarðar, eða 2.227 milljónir á dag. Þetta er 13% veltuaukning frá fyrra ári.

·         Mest voru viðskipti með bréf Marel (MARL) 114,5 milljarðar, Icelandair Group (ICEAIR)  75,9 milljarðar, Símans (SIMINN) 59,3 milljarðar, Reita fasteignafélags 55,6 milljarðar og Haga (HAGA) 51,6 milljarðar.  Á Aðalmarkaði hækkaði verð bréfa HB Granda mest eða um 35% á árinu og næst verð bréfa Fjarskipta um 39%.  Á Nasdaq First North markaðnum hækkaði verð bréfa Iceland Seafood International mest eða um 31%.

·         Úrvalsvísitalan (OMXI8) lækkaði um 4,4% á árinu og stendur nú í 1.635 stigum. Heildarvísitala hlutabréfa hækkaði um 4,7%. 

·         Markaðsvirði skráðra hlutabréfa var í árslok 820 milljarðar sem er 17% lægra en í lok síðasta árs.  Í lok árs voru 20 félög skráð, þar af 4 á Nasdaq First North. Á árinu 2017 var eitt hlutafélag tekið til viðskipta; Klappir Grænar Lausnir hf. á First North.

Verðbreytingar hlutabréfa á árinu 2017:

Hækkanir     Lækkanir    
  % breyting     % breyting  
HB Grandi hf. 34,6% Reginn hf. -2,1%
Fjarskipti hf. 32,9% Skeljungur hf. -3,0%
Marel hf. 32,9% Eik fasteignafélag hf. -4,7%
Síminn hf. 31,8% Reitir fasteignafélag hf. -8,0%
Nýherji hf. 31,4% N1 hf. -11,6%
Iceland Seafood International 30,6% Eimskipafélag Íslands hf. -22,3%
Vátryggingafélag Íslands hf. 28,4% Hagar hf. -33,8%
Tryggingamiðstöðin hf. 18,0% Icelandair Group hf. -36,3%
Hampiðjan hf. 14,7%      
Sjóvá-Almennar tryggingar hf. 9,7%      
Sláturfélag Suðurlands svf. 0,0%      
Klappir Grænar Lausnir hf. 0,0%      

Skuldabréf

·         Heildarviðskipti með skuldabréf námu 1.240 milljörðum á árinu sem samsvarar 5,0 milljarða veltu á dag, samanborið við 5,9 milljarða veltu á dag árið 2016. Alls námu viðskipti með ríkisbréf 946 milljörðum, viðskipti með bankabréf 163 milljörðum og viðskipti með íbúðabréf 58,5 milljörðum. Þetta er 16% minni velta en í fyrra.

·         Á árinu hækkuðu allar skuldabréfavísitölur Kauphallarinnar. Aðalvísitala skuldabréfa (NOMXIBB) hækkaði um 9,3% og stendur í 1.365 stigum.  Óverðtryggða skuldabréfavísitala Kauphallarinnar (NOMXINOM) hækkaði um 5,0% og sú verðtryggða (NOMXIREAL) hækkaði um 10,9%.

 

Gleðilegt nýtt ár – þökkum fyrir góð samskipti á liðnu ári

#

 

Um Nasdaq

Nasdaq (Nasdaq:NDAQ) er leiðandi á alþjóðavísu í þjónustu á sviði verðbréfaviðskipta, kauphallartækni, eftirlits, skráninga, upplýsingaþjónustu og þjónustu við skráð fyrirtæki í sex heimsálfum. Nasdaq gerir viðskiptavinum sínum kleift að skipuleggja, hagræða og framkvæma framtíðarsýn sína í viðskiptum af öryggi, með margreyndri tækni sem veitir gagnsæi og innsýn í nútíma alþjóðlega fjármálamarkaði. Nasdaq er frumkvöðull í rafrænum kauphallarviðskiptum, en tækni þess er notuð á yfir 90 mörkuðum í 50 löndum og knýr um það bil ein af hverjum 10 viðskiptum í heiminum. Nasdaq er heimili meira en 3,900 skráðra fyrirtækja að markaðsvirði yfir 12 billjón Bandaríkjadala. Fyrir meiri upplýsingar, heimsæktu http://business.nasdaq.com/

Fyrirvari vegna staðhæfinga um framtíðarhorfur

Þau mál sem hér er skýrt frá taka til staðhæfinga um framtíðarhorfur sem gerðar eru samkvæmt svonefndum Safe Harbor ákvæðum í bandarískum verðbréfalögum frá 1995 (Private Securities Litigation Reform Act of 1995). Þessar staðhæfingar taka meðal annars til en takmarkast þó ekki við staðhæfingar um afurðir og þjónustu Nasdaq. Við minnum á að þessar staðhæfingar eru ekki trygging fyrir framtíðarafkomu. Raunveruleg niðurstaða kann að vera allt önnur en sú sem fram kemur berum orðum eða með öðrum hætti í staðhæfingum um framtíðarhorfur. Í staðhæfingum um framtíðarhorfur eru ýmsir áhættu- og óvissuþættir eða aðrir þættir sem Nasdaq hefur ekki stjórn á. Þessir þættir byggjast á en takmarkast þó ekki við þætti sem gerð er grein fyrir í ársskýrslu Nasdaq á svonefndu Form 10-K og árshlutaskýrslum sem sendar eru til bandaríska verðbréfaeftirlitsins. Við tökumst ekki á hendur neinar skuldbindingar um að endurskoða að neinu leyti staðhæfingar um framtíðarhorfur.

Nasdaq Nordic lýsir sameiginlegri þjónustu Nasdaq Copenhagen, Nasdaq Helsinki, Nasdaq Iceland og Nasdaq Stockholm. 

         FJÖLMIÐLASAMSKIPTI
          Kristín Jóhannsdóttir
          868 9836
          kristin.johannsdottir@nasdaq.com