Reykjavíkurborg fyrsti útgefandi grænna skuldabréfa á Nasdaq Iceland


Reykjavík, 21. desember, 2018 – Nasdaq (Nasdaq: NDAQ) tilkynnir að Reykjavíkurborg varð í dag fyrst til að skrá græn skuldabréf á markað Nasdaq Iceland fyrir sjálfbær skuldabréf. Skuldabréfið er verðtryggt til 30 ára og var gefið út þann 17. desember sl. eftir að 4,1 milljarður að nafnvirði var seldur í lokuðu útboði með þátttöku 15 fagfjárfesta. Fyrirhugað er að flokkurinn verði stækkaður á komandi árum og að viðskiptavakt verði tekin upp með hann.

Tilgangur með útgáfu skuldabréfsins er að fjármagna græn fjárfestingarverkefni Reykjavíkurborgar í samræmi við Grænan ramma Reykjavíkurborgar (Green Bond Framework). Einungis má fjármagna með grænum skuldabréfum borgarinnar þau verkefni sem uppfylla strangar kröfur Græna rammans. Dæmi um fjárfestingar sem gætu fallið undir Græna rammann eru gerð göngu- og hjólastíga, innleiðing á LED ljósum fyrir götulýsingu og hleðslustöðvar fyrir rafmagnsbíla.

„Þetta er mikilvægur áfangi fyrir Reykjavík”, sagði Dagur Eggertsson, borgarstjóri Reykjavíkur. „Markmið okkar er að styrkja sífellt stöðu okkar sem græn borg sem verður kolefnishlutlaus fyrir árið 2040. Við samþykktum Græna rammann sem fær hæstu einkunn samkvæmt mati CICERO (Center for International Climate Research), eða dökkgrænn (Dark Green), ásamt öllum verkefnum innan hans. Einnig er litið sérstaklega til stjórnsýslulegs fyrirkomulags sem fær einnig hæstu einkunn eða framúrskarandi (Excellent). Að auki er ég með ánægður með þann mikla áhuga sem við höfum fengið frá fjárfestum. Þetta er mjög góð byrjun á verkefninu og þeirri viðleitni okkar að verða sjálfbær borg.”

Sjálfbærni er lykilatriði fyrir velsæld þjóða og fyrsta græna skuldabréfaútgáfa Reykjavíkurborgar er mikilvægt skref í þá átt”, sagði Magnús Harðarson, forstöðumaður viðskipta- og skráninga hjá Nasdaq Iceland. Þetta er fyrsta skráning á markað Nasdaq Iceland fyrir sjálfbær skuldabréf, en mikill áhugi fjárfesta á útgáfu Reykjavíkur lofar góðu fyrir uppbyggingu á honum. Það er mikill heiður að bjóða höfuðborgina okkar velkomna á markað með fyrstu skráningu græns skuldabréfs á Nasdaq Iceland.” 

Fossar Markaðir höfðu umsjón með sölu bréfanna og samskipti við fjárfesta.

 

#

Um Nasdaq

Nasdaq (Nasdaq:NDAQ) er leiðandi á alþjóðavísu í þjónustu á sviði verðbréfaviðskipta, kauphallartækni, eftirlits, skráninga, upplýsingaþjónustu og þjónustu við skráð fyrirtæki í sex heimsálfum. Nasdaq gerir viðskiptavinum sínum kleift að skipuleggja, hagræða og framkvæma framtíðarsýn sína í viðskiptum af öryggi, með margreyndri tækni sem veitir gagnsæi og innsýn í nútíma alþjóðlega fjármálamarkaði. Nasdaq er frumkvöðull í rafrænum kauphallarviðskiptum, en tækni þess er notuð á yfir 90 mörkuðum í 50 löndum og knýr um það bil ein af hverjum 10 viðskiptum í heiminum. Nasdaq er heimili meira en 4000 skráðra fyrirtækja að markaðsvirði yfir 15 billjón Bandaríkjadala. Fyrir meiri upplýsingar, heimsæktu http://business.nasdaq.com/

 

Fyrirvari vegna staðhæfinga um framtíðarhorfur

Þau mál sem hér er skýrt frá taka til staðhæfinga um framtíðarhorfur sem gerðar eru samkvæmt svonefndum Safe Harbor ákvæðum í bandarískum verðbréfalögum frá 1995 (Private Securities Litigation Reform Act of 1995). Þessar staðhæfingar taka meðal annars til en takmarkast þó ekki við staðhæfingar um afurðir og þjónustu Nasdaq. Við minnum á að þessar staðhæfingar eru ekki trygging fyrir framtíðarafkomu. Raunveruleg niðurstaða kann að vera allt önnur en sú sem fram kemur berum orðum eða með öðrum hætti í staðhæfingum um framtíðarhorfur. Í staðhæfingum um framtíðarhorfur eru ýmsir áhættu- og óvissuþættir eða aðrir þættir sem Nasdaq hefur ekki stjórn á. Þessir þættir byggjast á en takmarkast þó ekki við þætti sem gerð er grein fyrir í ársskýrslu Nasdaq á svonefndu Form 10-K og árshlutaskýrslum sem sendar eru til bandaríska verðbréfaeftirlitsins. Við tökumst ekki á hendur neinar skuldbindingar um að endurskoða að neinu leyti staðhæfingar um framtíðarhorfur.

Nasdaq Nordic lýsir sameiginlegri þjónustu Nasdaq Copenhagen, Nasdaq Helsinki, Nasdaq Iceland og Nasdaq Stockholm.

 

         FJÖLMIÐLASAMSKIPTI:
          Kristín Jóhannsdóttir
          868 9836
          kristin.johannsdottir@nasdaq.com

Reykjavik Reykjavik