Arion banki birtir afkomu annars ársfjórðungs 2020 miðvikudaginn 29. júlí. Fundur fyrir markaðsaðila fimmtudaginn 30. júlí


Arion banki birtir afkomu fyrsta ársfjórðungs 2020 miðvikudaginn 29. júlí, eftir lokun markaða.

Fjárfestafundur / vefstreymi fyrir markaðsaðila 30. júlí kl. 8:30

Haldinn verður fundur fyrir markaðsaðila fimmtudaginn 30. júlí klukkan 8:30 þar sem Benedikt Gíslason bankastjóri Arion banka, Stefán Pétursson framkvæmdastjóri fjármálasviðs, Eggert Teitsson aðstoðarframkvæmdastjóri fjármálasviðs og Theodór Friðbertsson forstöðumaður fjárfestatengsla munu kynna afkomu bankans og svara spurningum þátttakenda. Fundurinn fer fram á ensku í höfuðstöðvum Arion banka, Borgartúni 19, og verður streymt beint.

Þeir sem hyggjast sækja fundinn eru vinsamlegast beðnir um að skrá sig hér.

Þeir sem vilja hringja inn á fundinn og taka þátt með því að leggja fram spurningar þurfa að hringja inn áður en kynningin hefst, sjá eftirfarandi símanúmer:

Ísland: 800 7520
Svíþjóð: 46 850 558 369
Bretland: 44 333 300 9261
Bandaríkin: 1 833 823 0586

Hægt verður að nálgast streymið beint á financialhearings.com og á fjárfestatengslavef bankans.

Nánari upplýsingar veitir Theodór Friðbertsson, forstöðumaður fjárfestatengsla Arion banka, ir@arionbanki.is, s.856 6760.