Islandsbanki hf.: Útboð á grænum almennum skuldabréfum 15. nóvember


Íslandsbanki hf. verður með lokað útboð á tveimur flokkum almennra skuldabréfa (e. senior preferred) þriðjudaginn 15. nóvember 2022.

Boðnir verða út tveir nýir flokkar ISB GBF 27 1122 og ISB GB 27 1122.

ISB GBF 27 1122 er óverðtryggður skuldabréfaflokkur til 5 ára með lokagjalddaga 22. nóvember 2027. Um er að ræða grænt skuldabréf með mánaðarlegum vaxtagreiðslum og jöfnum afborgunum. Vextir reiknast sem 1 mánaðar REIBOR vaxtagrunnur að viðbættu 125 punkta álagi.

ISB GB 27 1122 er óverðtryggður skuldabréfaflokkur til 5 ára. Um er að ræða grænt vaxtagreiðslubréf sem ber fasta árlega 7,70% vexti og fer greiðsla höfuðstóls fram á lokagjalddaga 22. nóvember 2027.

Útboðið fer fram á föstum kjörum og verða bréfin seld á pari.

Í tengslum við útboðið býðst eigendum flokkanna ISB 24 1125 og ISB GB 25 1126 að selja bréf í flokkunum gegn kaupum á skuldabréfum í ofangreindu útboði. Verð á ISB 24 1125 er fyrirfram ákveðið og er hreint verð 100,00. Verð á ISB GB 25 1126 er fyrirfram ákveðið og er hreint verð 89,9746 (ávöxtunarkrafa 7,33%).

Bankinn áskilur sér rétt til að samþykkja eða hafna tilboðum að hluta til eða öllu leyti.

Áætlaður uppgjörsdagur viðskipta er 22. nóvember 2022.

Stefnt er að skráningu bréfanna á Nasdaq Iceland þann 22. nóvember 2022 og verða þau gefin út undir European Medium Term Notes (EMTN) útgáfuramma bankans.

Andvirði útgáfunnar mun verða notað til lánveitinga sem uppfylla skilyrði sem sett eru fram í sjálfbærum fjármálaramma Íslandsbanka. Frekari upplýsingar má nálgast á vefsíðu bankans: https://www.islandsbanki.is/is/vara/bankinn/fjarmognun-bankans.

Verðbréfamiðlun Íslandsbanka hefur umsjón með útboðinu. Tilboðum skal skilað á tölvupóstfangið vbm@isb.is fyrir kl. 16:00 þann 15. nóvember 2022.

Nánari upplýsingar veita: Fjárfestatengsl ir@islandsbanki.is.