Sjóvá: Uppgjör annars ársfjórðungs 2023 verður birt 28. ágúst – kynningarfundur sama dag kl. 16:15


Sjóvá-Almennar tryggingar hf. birtir uppgjör annars ársfjórðungs 2023 eftir lokun markaða mánudaginn 28. ágúst nk.

Kynningarfundur í fundarsal félagsins í Kringlunni 5 og í vefstreymi

Markaðsaðilum og fjárfestum er boðið á kynningarfund í fundarsal félagsins í Kringlunni 5, 6. hæð þann 28. ágúst nk. kl. 16:15. Þar munu Hermann Björnsson forstjóri, Sigríður Vala Halldórsdóttir framkvæmdastjóri fjármála og upplýsingatækni og Þórður Pálsson forstöðumaður fjárfestinga kynna uppgjörið. Kynningunni verður jafnframt streymt á slóðinni https://www.sjova.is/um-okkur/fjarfestar/afkomukynning-2f-2023/.

Vilji aðilar bera upp spurningar má senda þær á netfangið fjarfestar@sjova.is fyrir fundinn eða á meðan á fundi stendur og verður þeim svarað í lok kynningarinnar.

Uppgjörsefni verður aðgengilegt á vef Sjóvár www.sjova.is/fjarfestar frá þeim tíma er kynningin hefst og verður upptaka af fundinum aðgengileg á sömu síðu að fundi loknum.

Nánari upplýsingar veitir Davíð Scheving Thorsteinsson, í síma 869-8109 eða á netfangið fjarfestar@sjova.is