Sjóvá: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun


Í viku 38 keyptu Sjóvá-Almennar tryggingar hf. (Sjóvá) 480.235 eigin hluti að kaupverði 15.456.321 kr. eins og nánar er greint frá hér á eftir:

DagsetningTímiKeyptir hlutirViðskiptaverð (gengi)Kaupverð (kr.)
20.9.202313:47:0212.11932,20390.232
21.9.202314:44:05450.00032,2014.490.000
22.9.202310:07:0418.11631,80576.089
Samtals 480.235 15.456.321
     

Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem tilkynnt var um í Kauphöll þann 29.08.2023.

Sjóvá átti 17.342.686 eigin hluti fyrir viðskiptin og eiga að þeim loknum 17.822.921 eigin hluti eða sem nemur 1,51% af útgefnum hlutum í félaginu.

Sjóvá hefur keypt samtals 3.372.657 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 0,29% af útgefnum hlutum í félaginu og nemur heildarkaupverð þeirra 112.939.247 kr. Endurkaup samkvæmt áætluninni munu nema að hámarki 7.352.941 hlutum þannig að eigin hlutir nemi að hámarki 1,85% af útgefnum hlutum í félaginu. Heildarkaupverð má þó ekki vera hærra en 250.000.000 kr. Endurkaupaáætlunin er í gildi til og með 10. september 2024, nema skilyrði um hámarkskaup verði uppfyllt fyrir þann tíma.

Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar verður í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/​1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/2014, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052, samanber lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021.

Nánari upplýsingar veitir:

Davíð Scheving Thorsteinsson í síma 869-8109 eða á netfangið fjarfestar@sjova.is