Sjóvá: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun


Í viku 39 keyptu Sjóvá-Almennar tryggingar hf. (Sjóvá) 500.535 eigin hluti að kaupverði 15.967.067 kr. eins og nánar er greint frá hér á eftir:

DagsetningTímiKeyptir hlutirViðskiptaverð (gengi)Kaupverð (kr.)
26.9.202309:46:3150.53531,901.612.067
27.9.202314:32:20450.00031,9014.355.000
Samtals 500.535 15.967.067
     

Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem tilkynnt var um í Kauphöll þann 29.08.2023.

Sjóvá átti 17.822.921 eigin hluti fyrir viðskiptin og eiga að þeim loknum 18.323.456 eigin hluti eða sem nemur 1,55% af útgefnum hlutum í félaginu.

Sjóvá hefur keypt samtals 3.873.192 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 0,33% af útgefnum hlutum í félaginu og nemur heildarkaupverð þeirra 128.906.314 kr. Endurkaup samkvæmt áætluninni munu nema að hámarki 7.352.941 hlutum þannig að eigin hlutir nemi að hámarki 1,85% af útgefnum hlutum í félaginu. Heildarkaupverð má þó ekki vera hærra en 250.000.000 kr. Endurkaupaáætlunin er í gildi til og með 10. september 2024, nema skilyrði um hámarkskaup verði uppfyllt fyrir þann tíma.

Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar verður í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/​1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/2014, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052, samanber lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021.

Nánari upplýsingar veitir:

Davíð Scheving Thorsteinsson í síma 869-8109 eða á netfangið fjarfestar@sjova.is