Sjóvá: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun


Í viku 41 keyptu Sjóvá-Almennar tryggingar hf. (Sjóvá) 20.737 eigin hluti að kaupverði 671.879 kr. eins og nánar er greint frá hér á eftir:

DagsetningTímiKeyptir hlutirViðskiptaverð (gengi)Kaupverð (kr.)
11.10.202315:15:1410.73732,40347.879
12.10.202314:58:5110.00032,40324.000
Samtals 20.737 671.879
     

Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem tilkynnt var um í Kauphöll þann 29.08.2023.

Sjóvá átti 19.487.781 eigin hluti fyrir viðskiptin og eiga að þeim loknum 19.508.518 eigin hluti eða sem nemur 1,66% af útgefnum hlutum í félaginu.

Sjóvá hefur keypt samtals 5.058.254 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 0,43% af útgefnum hlutum í félaginu og nemur heildarkaupverð þeirra 167.159.457 kr. Endurkaup samkvæmt áætluninni munu nema að hámarki 7.352.941 hlutum þannig að eigin hlutir nemi að hámarki 1,85% af útgefnum hlutum í félaginu. Heildarkaupverð má þó ekki vera hærra en 250.000.000 kr. Endurkaupaáætlunin er í gildi til og með 10. september 2024, nema skilyrði um hámarkskaup verði uppfyllt fyrir þann tíma.

Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar verður í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/​1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/2014, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052, samanber lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021.

Nánari upplýsingar veitir:

Davíð Scheving Thorsteinsson í síma 869-8109 eða á netfangið fjarfestar@sjova.is