Sýn hf.: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun


Í viku 4 keypti Sýn 197.942 eigin hluti að kaupverði 9.383.039 kr. eins og nánar er greint frá hér á eftir:

Dagsetning Tími Keyptir hlutir Viðskiptaverð (gengi) Kaupverð (kr.)
22.jan 13:05:15 65.000 47,6 3.094.000
23.jan 09:34:08 65.000 47,2 3.068.000
24.jan 09:58:34 65.000 47,4 3.081.000
26.jan 13:02:07 2.942 47,6 140.039
Samtals   197.942   9.383.039
         

Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem tilkynnt var um í Kauphöll þann 9. nóvember 2023.

Sýn átti 2.568.979 eigin hluti fyrir viðskiptin og eiga að þeim loknum 2.766.921 eigin hluti eða sem nemur 1,10% af útgefnum hlutum í félaginu.

Sýn hefur keypt samtals 2.766.921 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 1,10% af útgefnum hlutum í félaginu og nemur heildarkaupverð þeirra 125.381.307 kr. Endurkaup samkvæmt áætluninni munu nema að hámarki 8.000.000 hlutum þannig að eigin hlutir nemi að hámarki 3,19% af útgefnum hlutum í félaginu. Heildarkaupverð má þó ekki vera hærra en 300.000.000 kr. Endurkaupaáætlunin er í gildi til og með 16. febrúar 2024, nema skilyrði um hámarkskaup verði uppfyllt fyrir þann tíma.

Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar er í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/​1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/2014, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052, samanber lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021.

Nánari upplýsingar veita fjárfestatengsl Sýnar í gegnum netfangið fjarfestatengsl@syn.is