Sýn hf.: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun


Í viku 5 keypti Sýn 195.000 eigin hluti að kaupverði 9.360.000 kr. eins og nánar er greint frá hér á eftir:

Dagsetning Tími Keyptir hlutir Viðskiptaverð (gengi) Kaupverð (kr.)
30.jan 10:59:55 65.000 48 3.120.000
31.jan 13:16:31 65.000 48 3.120.000
1.feb 10:09:01 65.000 48 3.120.000
Samtals   195.000   9.360.000
         

Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem tilkynnt var um í Kauphöll þann 9. nóvember 2023.

Sýn átti 2.766.921 eigin hluti fyrir viðskiptin og eiga að þeim loknum 2.961.921 eigin hluti eða sem nemur 1,18% af útgefnum hlutum í félaginu.

Sýn hefur keypt samtals 2.961.921 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 1,18% af útgefnum hlutum í félaginu og nemur heildarkaupverð þeirra 134.741.307 kr. Endurkaup samkvæmt áætluninni munu nema að hámarki 8.000.000 hlutum þannig að eigin hlutir nemi að hámarki 3,19% af útgefnum hlutum í félaginu. Heildarkaupverð má þó ekki vera hærra en 300.000.000 kr. Endurkaupaáætlunin er í gildi til og með 16. febrúar 2024, nema skilyrði um hámarkskaup verði uppfyllt fyrir þann tíma.

Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar er í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/​1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/2014, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052, samanber lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021.

Nánari upplýsingar veita fjárfestatengsl Sýnar í gegnum netfangið fjarfestatengsl@syn.is