Leiðrétting: VÍS: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun


Í tilkynningu sem birt var í dag kl. 08:59 segir fyrir mistök að VÍS hafi í viku sjö keypt eigin hluti fyrir kr. 92.537.500 en rétt er að VÍS keypti eigin hluti fyrir kr. 93.537.500. Tilkynningin leiðréttist hér með:

Í sjöundu viku 2024 keypti VÍS 5.200.000 eigin hluti fyrir kr. 93.537.500 eins og hér segir: 

DagsetningTímiKeyptir hlutirViðskiptaverðKaupverð (kr.)Eigin hlutir eftir viðskipti
12.2.202410:48:30400.00018,207.280.00010.400.000
12.2.202412:48:37400.00018,207.280.00010.800.000
12.2.202415:19:44350.00018,106.335.00011.150.000
13.2.202411:20:36300.00018,105.430.00011.450.000
13.2.202414:39:43500.00017,908.950.00011.950.000
13.2.202415:07:47350.00017,906.265.00012.300.000
14.2.202414:34:48750.00017,8513.387.50013.050.000
14.2.202415:06:16400.00017,857.140.00013.450.000
15.2.202414:57:40750.00018,0013.500.00014.200.000
15.2.202415:13:16400.00018,007.200.00014.600.000
16.2.202414:00:14600.00017,9510.770.00015.200.000
  5.200.000 93.537.50015.200.000

Kaupin eru í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem hrint var í framkvæmd 31. janúar 2024, sbr. tilkynningu á markað þann 24. janúar 2024.
  
VÍS hefur keypt samtals 14.050.000 hluti í félaginu sem samsvarar 46,83% af þeim eigin hlutum sem að hámarki var heimilt að kaupa samkvæmt áætluninni. Kaupverð hinna keyptu hluta nemur samtals kr. 253.910.000. VÍS á nú samtals 15.200.000 hluti eða 0,80% af heildarhlutafé félagsins sem er 1.906.700.000. 

Í endurkaupaáætluninni kemur fram að ekki verði keyptir fleiri en 30.000.000 hlutir. Fjárhæð endurkaupanna verður þó aldrei hærri en 500 milljónir króna að heildarkaupverði.

Framkvæmd endurkaupaáætlunar og tilkynningar um viðskipti með eigin bréf eru í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/2014, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052, samanber lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021. 

Nánari upplýsingar veitir Erla Tryggvadóttir, samskiptastjóri, í síma 660-5260 eða með netfanginu fjarfestatengsl@vis.is