Lánasjóður sveitarfélaga - Ársreikningur 2023


Hagnaður ársins 1.866 milljónir króna

Hagnaður Lánasjóðs sveitarfélaga nam 1.866 milljónum króna á árinu 2023 samanborið við 1.260 milljónir króna á árinu 2022. Hreinar vaxtatekjur í ár aukast um 25% á milli ára, sem rekja má til verðbólgu og hækkun stýrivaxta.

Heildareignir sjóðsins í lok ársins voru 200 milljarðar króna en voru 181 milljarðar í árslok 2022 sem er aukning um 11%. Heildarútlán sjóðsins námu 191 milljörðum króna í lok ársins samanborið við 170 milljarða í árslok 2022.

Markaðsverðmæti verðbréfaútgáfu nam 18,8 milljörðum króna samanborið við 12,3 milljarða króna á árinu 2022.

Eigið fé nam 22,7 milljörðum króna en var 20,9 milljarðar í árslok 2022. Vegið eiginfjárhlutfall samkvæmt lögum um fjármálafyrirtæki er 416% með fullri mildun. Í árslok 2022 var hlutfallið 537%. Lánasjóðurinn nýtir sér mildunarákvæði við eiginfjárútreikninga vegna útlána til sveitarfélaga í íslenskum krónum sem eru með veð í tekjum sveitarfélaga.

Stjórn sjóðsins leggur til að á árinu 2024 verði hluthöfum ekki greiddur út arður vegna afkomu ársins 2023 til að styrkja stöðu sjóðsins og tryggja vöxt eigin fjár.


Rekstur ársins20232022202120202019
      
Hreinar vaxtatekjur.....................................1.5591.251 686 803 982
Aðrar rekstrartekjur ………............................588 279 102 200 27
Almennur rekstrarkostnaður........................282 270 252 220 214
Hagnaður ársins......................................1.866 1.260 536 783 795
      
Efnahagur 31. desember     
      
Handbært fé..............................................846 2.863 788 4.349 4.956
Ríkisbréf og ríkisvíxlar................................5.988 7.334 7.210 3.031 817
Markaðsverðbréf........................................2.442 265 167 448 411
Útlán og kröfur...........................................190.762 170.229 159.876 135.722 110.653
Aðrar eignir...............................................92 87 46 44 202
Eignir samtals..........................................200.130 180.778 168.087 143.593 117.040
      
Verðbréfaútgáfa........................................174.170 158.290 146.577 122.529 95.275
Aðrar lántökur...........................................2.976 1.510 1.810 1.905 3.395
Aðrar skuldir og skuldbindingar...................261 120 102 97 91
Skuldir samtals........................................177.407 159.920 148.490 124.532 98.761
      
Eigið fé....................................................22.727 20.858 19.598 19.062 18.278
      
CAD- hlutfall m/hefðbundinni mildun............53%56%56%61%70%
CAD- hlutfall m/fullri mildun.........................416%537%630%454%392%
Vogunarhlutfall...........................................11%12%12%13%16%


Framtíðarhorfur

Lánasjóður sveitarfélaga væntir þess að eftirspurn eftir útlánum verði svipuð í ár og var árið 2023. Vonir standa til að lánskjör batni þegar líður á árið en ekkert er öruggt í þeim efnum. Lánasjóðurinn mun starfa í grundvallaratriðum svipað og undanfarin ár þar sem unnið hefur verið að eflingu á starfsemi hans og betri þjónustu við sveitarfélögin með því að nýta gott lánstraust sjóðsins til að uppfylla meginhlutverk hans.


Nánari upplýsingar veitir: Óttar Guðjónsson, framkvæmdastjóri, s. 515 4949.

Viðhengi



Attachments

LS - Afkomutilkynning vegna ársuppgjörs 2023 Lánasjóður sveitarfélaga - Ársreikningur 2023 LS-2023-12-31-IS