Byggðastofnun - Ársuppgjör 2006


Ársreikningur Byggðastofnunar 2006
	2006	2005	2004	2003	2002
 	Þús. kr.	Þús. Kr.	Þús. kr.	Þús. kr.	Þús. kr.
Rekstrarreikningur		 	 		
Vaxtatekjur........................................	1.101.048	995.256	1.158.282	1.102.964	1.062.654
Vaxtagjöld.........................................	1.063.030	854.798	889.102	661.248	542.630
Hreinar vaxtatekjur.............................	38.018	140.458	269.180	441.716	520.024
Rekstrartekjur....................................	704.935	404.461	273.748	297.293	133.980
Hreinar rekstrartekjur..........................	742.953	544.919	542.928	739.009	654.004
		 	 		
Rekstrargjöld......................................	732.850	817.112	928.391	1.079.375	1.134.527
Hagnaður (-tap) ársins af regl. starfsemi	10.103	-272.193	-385.463	-340.366	-480.523
Aðrar tekjur og gjöld...........................	0	0	0	347.600	0
Hagnaður (-tap) ársins....................	10.103	-272.193	-385.463	7.234	-480.523
		 	 		
Með rekstrargjöldum eru færð framlög 
í afskriftareikning útlána og niðurfært hlutafé					
Framl. í afskriftarr. útlána og niðurf. hlutaf.	311.524	340.635	462.563	664.366	708.843
		 	 		
Efnahagsreikningur	31.12.2006	31.12.2005	31.12.2004	31.12.2003	31.12.2002
Eignir		 	 		
Sjóður og kröfur á lánastofnanir..............	1.330.946	1.196.834	2.620.525	1.067.848	266.986
Útlán...................................................	9.476.108	9.019.762	10.386.741	12.560.481	11.695.740
Eignahlutir í félögum.............................	1.324.381	1.377.409	1.324.478	1.183.469	1.093.343
Aðrar eignir.........................................	73.562	144.651	176.979	189.244	116.653
Eignir samtals...................................	12.204.997	11.738.656	14.508.723	15.001.042	13.172.722
		 	 		
Skuldir og eigið fé		 	 		
Lántökur.............................................	11.028.031	10.611.091	12.304.777	12.500.197	10.732.988
Aðrar skuldir.......................................	111.469	80.941	240.363	229.351	246.364
Reiknaðar lífeyrisskuldbindingar............	13.605	4.835	649.601	572.049	501.159
Skuldir samtals............................	11.153.105	10.696.867	13.194.741	13.301.597	11.480.511
		 	 		
Eigið fé..............................................	1.051.892	1.041.789	1.313.982	1.699.445	1.692.211
Skuldir og eigið fé samtals..........	12.204.997	11.738.656	14.508.723	15.001.042	13.172.722
		 	 		
Veittar ábyrgðir utan efnahagsreiknings.	426.300	398.912	421.929	1.354.633	1.502.701
					
Sjóðstreymi	2006	2005	2004	2003	2002
Hreint veltufé frá rekstri.......................	76.331	916.191	856.682	880.718	641.088
Fjárfestingarhreyfingar........................	372.378	-293.263	1.051.018	-658.498	-2.003.442
Fjármögnunarhreyfingar......................	-314.597	-2.046.619	-355.023	578.642	1.131.259
Hækkun/(-lækkun) á handbæru fé........	134.112	-1.423.691	1.552.677	800.862	-231.096
Handbært fé í ársbyrjun......................	1.196.834	2.620.525	1.067.848	266.986	498.081
Handbært fé í árslok.......................	1.330.946	1.196.834	2.620.525	1.067.848	266.986
		 	 		
Eiginfjárhlutfall samkvæmt lögum um lánastofnanir aðrar en viðskiptabanka 
og sparisjóði	8,91%	8,20%	9,59%	10,85%	11,78%


Hlutverk Byggðastofnunar er að vinna að eflingu byggðar og atvinnulífs á landsbyggðinni. Stofnunin undirbýr, skipuleggur og fjármagnar verkefni og veitir lán með það að markmiði að treysta byggð, efla atvinnu og stuðla að nýsköpun í atvinnulífi. Byggðastofnun fylgist einnig með þróun byggðar í landinu og vinnur að byggðaáætlun í samvinnu við Iðnaðarráðherra.

Byggðastofnun er með skrifstofu sína á Sauðárkróki.  Í lok tímabilsins störfuðu 20 starfsmenn hjá stofnuninni.

Ársreikningur Byggðastofnunar 2006 var staðfestur af stjórn stofnunarinnar 23. febrúar 2006.

Hagnaður ársins nam 10.103 þús. kr.

Hreinar vaxtatekjur námu 38.018 þús. kr. miðað við 140.458 þús. kr. árið 2005.  Rekstrartekjur námu 704.935 þús. kr. og rekstrargjöld að meðtölum framlögum í afskriftarreikning útlána og niðurfærsla hlutafjár nam 732.850 þús. kr.  Framlög í afskriftarreikning útlána og niðurfært hlutafé nam 311.524 þús. kr.  Hagnaður ársins nam því 10.103 þús. kr. miðað við 272.193 þús. kr. tap árið 2005.

Eigið fé Byggðastofnunar nam 1.051.892 þús. kr. eða 8,62% af niðurstöðu efnahagsreiknings.  Eiginfjárhlutfall stofnunarinnar samkvæmt lögum um fjármálafyrirtæki er 8,91%.  Samkvæmt ákvæðum laga nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki skal eigið fé lánastofnunar á hverjum tíma eigi nema lægri fjárhæð en sem svara 8% af áhættugrunni.

Varanlegir rekstrarfjármunir Byggðastofnunar voru 5,45% af eigin fé.

Eignir Byggðastofnunar í lok árs 2006 námu 12.204.998 þús. kr., þar af námu útlán 9.476.108 þús. kr. og hafa hækkað um 456.346 þús. kr. frá lok árs 2005.  Skuldir Byggðastofnunar námu 11.153.106 þús. kr. og hafa hækkað um 456.239 þús. kr. frá árinu 2005.  

Veittar ábyrgðir utan efnahagsreiknings voru um áramótin 426.300 þús. kr.

Í vetur var aftur lagt fram á Alþingi frumvarp um opinberan stuðning við tæknirannsóknir, nýsköpun og atvinnuþróun.  Skv. frumvarpinu á Nýsköpunarmiðstöð Íslands að verða til með sameiningu Byggðastofnunar, Iðntæknistofnunar og Rannsóknarstofnunar byggingariðnaðarins.   Á stofnun Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands að verða hluti af umfangsmikilli uppstokkun í opinberu stuðningskerfi nýsköpunar og atvinnuþróunar á vegum iðnaðar- og viðskiptaráðuneytis.  Frumvarpið hefur ekki verið afgreitt frá Alþingi.


Attachments

Byggastofnun - Arsuppgjor 2006.pdf