Olíufélagið - Ársuppgjör 2006


Hagnaður fyrir afskriftir og fjármagnsliði 1.457,6 millj. kr. og hagnaður tímabilsins er 334,5 millj. kr. 

Hagnaður Olíufélagsins ehf. og dótturfélaga  janúar - desember 2006 fyrir afskriftir og fjármagnsliði nam 1.457,6 millj. kr.  Hagnaður tímabilsins eftir skatta nam 334,5 millj.kr.  samanborið við 883,4 millj. kr. hagnað fyrir sama tímabil á fyrra ári.  

Veltufé frá rekstri nam 1.107,7 millj. kr. en var 1.129,3 millj. kr. fyrir sama tímabil á fyrra ári. Í lok desember 2006 var eiginfjárhlutfall samstæðunnar 27,76%. 


Árshlutareikningur Olíufélagsins ehf janúar - desember 2006

Árshlutareikningur Olíufélagsins ehf. fyrir fyrstu 12 mánuði ársins 2006 hefur verið staðfestur af stjórn félagsins og forstjóra.  Árshlutareikningurinn er gerður á sama hátt og síðastliðið ár og byggist á samstæðuárshlutareikningi Olíufélagsins ehf og dótturfélaga þess, Olíudreifingu ehf. og Egó ehf. 

Í febrúar síðastliðnum keypti BNB ehf. alla eignarhluti í Olíufélaginu ehf.  Í kjölfar kaupanna voru félögin sameinuð.  Árshlutareikningurinn er reikningur sameinaðs félags Olíufélagsins ehf. og BNB ehf.

Rekstur

Rekstrartekjur samstæðunnar nema 24.136 millj. kr. samanborið við 20.574 millj. kr. á árinu 2005.  Hreinar rekstrartekjur hækka um 509 millj. kr. frá fyrra ári og nema 5.641 millj. kr.  Rekstargjöld án afskrifta og leigugjalda  nema  3.648 millj kr. og eru 339 millj. kr. hærri en fyrir sama tímabil á fyrra ári.  Fjármagnsliðir eru neikvæðir um 544 millj. kr. á tímabilinu en voru jákvæðir um 124 millj. kr á fyrra ári.

Eignir

Bókfært verð eigna félagsins í lok tímabilsins námu 24.648 millj. kr. samanborið við 11.638 millj. kr. á fyrra ári.  Fastafjármunir hækka um 9.313 millj. kr. frá fyrra ári og nema 14.810 millj. kr. 

Eigið fé

Eigið fé þann 31. desember nam 6.842 millj. kr. samanborið við 3.689 millj. kr. 31. desember 2005.

Skuldir

Í lok tímabilsins námu heildarskuldir og skuldbindingar 17.282 millj. kr. og þar af námu langtímaskuldir  8.356 millj. kr. 
Staða og horfur

Rekstur félagsins á árinu 2006 er að mestu í samræmi við rekstraráætlanir.  

Nánari upplýsingar veita Hermann Guðmundsson forstjóri og Elías Bjarni Guðmundsson framkvæmdastjóri fjármálasviðs í síma 560 3300


Attachments

Oliufelagi - Lykiltolur.pdf Oliufelagi - 12 2006.pdf