- Áform um breytta tilhögun botnfiskvinnslu HB Granda á Akranesi


HB Grandi áformar breytingar í rekstri fyrirtækisins á Akranesi til að bregðast
við skerðingu aflamarks þorsks á fiskveiðiárinu 2007-2008. Stjórnendur HB
Granda kynntu áformin á fundi með trúnaðarmönnum starfsfólks kl. 10 í dag og
síðan á almennum starfsmannafundi sem hófst kl. 11 á Akranesi. Stjórn HB Granda
tekur endanlega ákvörðun um breytingar á Akranesi á mánudaginn kemur, 28.
janúar. 

Eftir skerðingu aflamarks í þorski hefur botnfiskvinnslan á Akranesi, sem áður
snerist um þorsk, verið starfrækt með því að flytja á Akranes hluta þess ufsa,
sem ella hefði verið unninn í Reykjavík. Slíkt fyrirkomulag er ekki hagkvæmt. 
Hins vegar rekur HB Grandi  mikilvæga  loðnuvinnslu á Akranesi á loðnuvertíð og
er nú til skoðunar að efla þá starfsemi, meðal annars með því að gera mögulegt
að heilfrysta þar loðnu.  Því er nú stefnt að því að leggja af landvinnslu
botnfisks  í núverandi mynd og hefja á Akranesi sérvinnslu á léttsöltuðum,
lausfrystum þorsk- og ufsaflökum í byrjun júní næstkomandi, með tilheyrandi
fjárfestingum í tækjum og búnaði.  Gert er ráð fyrir að starfsmenn í
loðnuvinnslu sinni þessari sérvinnslu utan loðnuvertíðar. 

Þessar ráðstafanir kalla á að öllum starfsmönnum HB Granda í landvinnslunni á
Akranesi verði sagt upp störfum 1. febrúar næstkomandi og síðan verði
endurráðnir 20 starfsmenn í flakavinnslu og til vinnslu loðnuhrogna. Á
launaskrá botnfiskvinnslu HB Granda á Akranesi eru nú 59 starfsmenn í 44
stöðugildum en verða 20 í jafnmörgum stöðugildum í júníbyrjun 2008. Starfsfólki
verður sagt upp með fjögurra mánaða uppsagnarfresti, sem rennur því út í lok
maímánaðar. Þeir sem lengri uppsagnarfrest hafa fá greitt í samræmi við það, en
ekki verður krafist vinnuframlags af þeirra hálfu eftir mánaðamótin maí/júní. 

Stjórn HB Granda gerir sér grein fyrir því að þetta eru alvarleg tíðindi fyrir
fjölda fólks, sem hefur starfað lengi hjá félaginu, og harmar að til þessa
þurfi að koma.  Rekstrarumhverfi landvinnslunnar er hins vegar þess eðlis að
breytingar eru óhjákvæmilegar í starfseminni með tilheyrandi fækkun
starfsfólks. Hópuppsagnir í fiskvinnslufyrirtækjum víðs vegar um land
undanfarnar vikur og mánuði segja sína sögu um ástandið í atvinnugreininni.
Stjórnendur HB Granda munu eftir megni liðsinna fólki við að komast í vinnu
annars staðar.