Tilkynning varðandi þátttöku Landsbankans í gerð yfirtökutilboðs í Close Brothers Group plc.


Landsbanki Íslands hf. vísar til tilkynningar sinnar til OMX kauphallar á
Íslandi frá 14. janúar sl.  Landsbankinn vill vekja athygli markaðsaðila á
eftirfarandi tilkynningu sinni þar sem fram kemur að bankinn hefur, með þeim
fyrirvörum sem þar greinir, hætt við þátttöku í gerð yfirtökutilboðs í Close
Brothers Group Plc í kjölfar yfirlýsingar Cenkos Securities plc. um að félagið
hygðist ekki leggja fram yfirtökutilboð í Close Brothers Group. 

Frekari upplýsingar veita:
Sigurjón Þ. Árnason, bankastjóri,  sími 898 0177 
Halldór J. Kristjánsson, bankastjóri, sími 820 6399