Afkoma Landsbankans á árinu 2007 - afkomukynning í Reykjavík


Afkomutilkynning 
28.  janúar 2008
Afkoma Landsbanka Íslands hf. á ársinu 2007
Hagnaður 40 milljarðar króna eftir skatta
Arðsemi eigin fjár 27%

Helstu niðurstöður úr ársreikningi Landsbanka Íslands hf. fyrir árið 2007:

•	Hagnaður ársins 2007 nam 39,9 milljörðum króna (EUR 456m). Hagnaður fyrir
skatta var 45,6 milljarðar króna (EUR 520m).  Arðsemi eigin fjár eftir skatta
var 27%. 
•	Grunntekjur samstæðunnar (vaxtamunur og þjónustutekjur) námu 93,4 milljörðum
króna (EUR 1,1bn) á árinu 2007 og jukust um 34% frá fyrra ári. 
•	Grunntekjumyndun verður stöðugt dreifðari og var hlutfall erlendra grunntekna
52% á árinu 2007 samanborið við 49% á árinu 2006. 
•	Þóknunartekjur námu 39,4 milljörðum króna (EUR 449m) samanborið við 28,4
milljarða króna á árinu 2006. 
•	Gengismunur og fjárfestingatekjur námu 16,6 milljörðum króna (EUR 189m)
samanborið við 19,6 milljarða króna á árinu 2006. 
•	Lausafjárstaða bankans er mjög sterk og nam laust fé tæplega 9 milljörðum
evra í árslok 2007. Afborganir af erlendum skuldabréfaútgáfum á árinu 2008 eru
hinsvegar einungis 0,8 milljarðar evra. 
•	Heildareignir bankans námu 3.058 milljörðum króna (EUR 33,4bn) króna í árslok
2007 í samanburði við 2.173 milljarða króna í upphafi ársins. 
•	Útlán bankans námu 2.023 milljörðum króna (EUR 22,1bn) í árslok 2007.  Innlán
viðskiptavina námu hinsvegar 1.421 milljarði króna (EUR 15,5bn) eða um það bil
¾ af heildarútlánum og jukust þau um 108% á árinu. 
•	Landsbankinn er með engar áhættuskuldbindingar sem tengjast
skuldabréfavafningum (s.s. CDOs, SIVs og CLOs) í útlánasafni sínu. 
•	Eiginfjárhlutfall (CAD) var 11,7% í árslok 2007. Eiginfjárþáttur A var 10,1%.

Helstu niðurstöður fjórða ársfjórðungs 2007:

•	Hagnaður eftir skatta á fjórða ársfjórðungi 2007 nam 4,9 milljörðum króna
(EUR 56m). 
•	Hreinar rekstrartekjur fjórða ársfjórðungs námu 24,8 milljörðum króna (EUR
283m). 
•	Hreinar vaxtatekjur námu 15,2 milljörðum króna (EUR 174m) í samanburði við
14,4 milljarða króna á þriðja ársfjórðungi. 
•	Þóknunartekjur þriðja ársfjórðungs námu 9,7 milljörðum króna (EUR 110m)
•	Grunntekjur samstæðunnar hafa aldrei verið hærri á einum ársfjórðungi eða
24,9 milljarðar króna (EUR  284m) 

Sigurjón Þ. Árnason bankastjóri:

”Rekstrarafkoma Landsbankans á árinu 2007 var góð og nam hagnaður bankans 40
milljörðum króna og arðsemi eigin fjár 27%. Tekjumyndun samstæðunnar verður
sífellt dreifðari auk þess sem grunnafkoma  hefur verið stöðug eða í kringum
24-26% arðsemi á eigin fé fyrir skatta. Lausafjárstaða bankans er sterk einkum
vegna mikils vaxtar í erlendri innlánastarfsemi. Afborganir af erlendum
skuldabréfaútgáfum verða óverulegar á árinu 2008 eða 0,8 milljarðar evra á
meðan laust fé bankans er tæpir 9 milljarðar evra. Þá er útlánasafn
Landsbankans traust og er bankinn ekki með neinar áhættuskuldbindingar sem
tengjast svokölluðum skuldabréfavafningum, s.s. CDOs, SIVs osfrv. Við þær
óvenjulegu aðstæður sem einkenna alþjóðlega fjármálamarkaði þessi misserin
skapa þessir þættir í raun tækifæri fyrir banka eins og Landsbankann”. 

Halldór J. Kristjánsson bankastjóri:
 
”Árangur margþáttaðra aðgerða sem gripið hefur verið til á undanförnum misserum
kemur skýrt fram í uppgjöri Landsbankans fyrir árið 2007. Dregið hefur verið úr
markaðsáhættu, útlánasafn bankans er vel áhættudreift og fjármögnunarhlið
bankans sterk. Innlán nema nú um ¾ af heildarútlánum til viðskiptavina og er
bankinn með tæplega 150 þúsund viðskiptavini sem valið hafa IceSave innlánsform
okkar í Bretlandi. Á árinu var nýjum vörum bætt í innlánasafn IceSave og eru
14% innstæðna nú bundnar til lengri tíma.  Tryggir það áframhaldandi
áhættudreifingu innlána samstæðunnar.  Á fjórða ársfjórðungi gekk bankinn frá
400 milljón USD víkjandi láni og styrkti þannig eiginfjárstöðu sína enn frekar
og er eiginfjárstaða og lausafjárhlutfall bankans nú með því besta sem gerist í
Norður Evrópu. Áframhaldandi samþætting rekstrareininga miðaði vel á árinu og
hefur bankinn lagt áherslu á að kynna starfsemi bankans og stöðu íslensks
efnahagslífs í því umróti sem einkennir alþjóðlega fjármálamarkaði”. 

Ársreikning Landsbanka Íslands hf. 2007 má nálgast á heimasíðu bankans
www.landsbanki.com 

Nánari upplýsingar veita bankastjórar Landsbankans:
Sigurjón Þ. Árnason í síma 410-4009 / 898-0177 og Halldór J. Kristjánsson í
síma 410-4015 / 820-6399.

Attachments

landsbanki consolidated financial statements 31122007 - an forsiu.pdf landsbanki financial results 2007 - press release.pdf afkomutilkynning landsbanki arsreikningur 2007.pdf landsbanki - q4 2007 results presentation reykjavik - 25 jan 2008.pdf