- Kaupþing lýkur endurskipulagningu á rekstrinum í Bretlandi


Kaupþing Singer & Friedlander hyggst hætta starfsemi á sviði eignafjármögnunar
(e. Asset Finance) og hrávöruviðskiptafjármögnunar (e. Commodity Trade Finance)
auk þess sem gerðar hafa verið skipulagsbreytingar innan fyrirtækjasviðsins í
Bretlandi. Þessar breytingar eru síðasti liðurinn í endurskipulagningu
rekstrarins í Bretlandi í kjölfar kaupa Kaupþings á Singer & Friedlander árið
2005. 

Í kjölfar þessarar endurskipulagningar mun Kaupthing Singer & Friedlander
eingöngu leggja áherslu á að veita heildstæða fjármálaþjónustu til lítilla og
meðalstórra fyrirtækja og fjársterkra einstaklinga í gegnum fimm kjarnasvið
bankans; fyrirtækjasvið, fyrirtækjaráðgjöf, fjárstýringu, markaðsviðskipti og
eignastýringu & einkabankaþjónstu. 

Eignafjármögnun (fyrirtækjaeignafjármögnun, eignafjármögnun á sviði
heilbrigðisþjónustu og tryggingaiðgjaldafjármögnun) og
hrávöruviðskiptafjármögnun teljast ekki til kjarnastarfsemi hjá Kaupthing
Singer & Friedlander og eru að mestu leyti reknar óháðar öðrum deildum. Þessar
breytingar koma til með að hafa jákvæð áhrif á kostnaðarhlið bankans og losa um
lausafé sem nemur rúmlega 1 milljarði punda (130 milljörðum króna) á árinu
2008. Það fjármagn sem losnar verður nýtt til að efla kjarnastarfsemina í
Bretlandi enn frekar. Eftir að þessar breytingar verða um garð gengnar er
starfsemi Kaupþings-samstæðunnar á sviði eignafjármögnunar óveruleg. 

Þar að auki hefur Kaupthing Singer & Friedlander flutt þá deild sem fæst við
sérhæfð lánaviðskipti (e. Structured Finance) frá fyrirtækjasviði yfir í þá
deild fyrirtækjaráðgjafar sem fæst við skuldsettar yfirtökur (e. acquisition
and leveraged finance). Kaupthing Singer & Friedlander mun einnig loka þeim
deildum sem sinna fasteigna- og fyrirtækjalánum (e. Property and Corporate
Banking) í Leeds og Manchester og flytja þær til Birmingham og Lundúna. 

Ármann Þorvaldsson, forstjóri Kaupthing Singer & Friedlander
"Þessar breytingar marka lokaskrefin í endurskipulagningunni sem hófst í
kjölfar yfirtöku okkar á Singer & Friedlander. Við ætlum nú að beina kröftum
okkar og fjármagni að kjarnastarfseminni í Bretlandi. Ég vil þakka stjórnendum
og starfsfólki þeirra sviða sem við erum nú að segja skilið við fyrir þátt
þeirra í velgengninni sem við höfum notið í starfseminni í Bretlandi." 

Frekari upplýsingar veitir:
Jónas Sigurgeirsson, framkvæmdastjóri Samskiptasviðs í síma 444 6112