2007


Hagnaður Sorpu b.s. á árinu 2007 nam 161,3 millj.kr.


Niðurstöður:

Hagnaður Sorpu b.s. á árinu 2007 nam 161,3 millj.kr. en var 10 millj.kr. árið
2006 Hagnaður fyrir fjármagnsliði og afskriftir nam 307,2 millj.kr. á árinu
2007 en var 178,3 millj.kr. á árinu 2006. Rekstrartekjur samlagsins námu
2.006,2 millj.kr. árið 2007 samanborið við 1.694,7 millj.kr. árið 2006 sem er
18,4% hækkun. Rekstrargjöld, án afskrifta og fjármagnsliða voru 1.699,1
millj.kr. samanborið við 1.516.4 millj.kr. 2006 og er hækkunin 12%. 

Heildareignir samlagsins 31. desember 2007 námu 1.824 millj.kr. og
heildarskuldir 725,3 millj.kr. Eigið fé 31.desember 2007 var 1.098,7 millj.kr.
og hafði aukist um 164 millj.kr. frá því í upphafi árs. Eiginfjárhlutfall var
um 60% en var í lok síðasta árs um 52%. 

Handbært fé frá rekstri á árinu 2007 var 262,8 millj.kr. en var árið 2006 91,9
millj.kr. Veltufjárhlutfall í árslok 2007 var 1,46 og handbært fé nam 260,8
millj.kr. Fjárfestingarhreyfingar ársins 2007 námu 15,6 millj.kr. og
fjármögnunarhreyfingar tæpar 125,8 millj.kr. 

Reikningsskilaaðferðir:
Ársreikningur Sorpu b.s. er gerður í meginatriðum eftir sömu
reikningsskilaaðferðum og árið áður. 

Attachments

sorpa b s  - arsreikningur 2007.pdf sorpa bs  frettatilkynning 25 februar 2008.pdf