- Tekjur aukast um 20% frá sama ársfjórðungi árið áður • Salan jókst um 1,5 milljarða króna á milli ára eða um 20%. Sala nam 8,9 milljörðum króna samanborið við 7,4 milljarða árið áður. • Handbært fé frá rekstri án vaxta og skatta nam 2,6 milljörðum króna en eftir vexti og skatta nam handbært fé frá rekstri 1,9 milljörðum króna. • Tap tímabilsins nam 3,6 milljörðum króna sem skýrist einkum af gengisþróun íslensku krónunnar á tímabilinu. • Fjármagnsgjöld voru 5,5 milljarðar króna en þar af nam gengistap 4,4 milljörðum króna. • Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir og fjármagnsliði (EBITDA) nam 2 milljörðum króna samanborið við 2,1 milljarð fyrir sama tímabil 2007. EBITDA hlutfallið var 22,4%. • 28% af tekjum samstæðunnar koma frá erlendri starfsemi félagsins. • Eiginfjárhlutfall Skipta hf. er 30,4%. Helstu atburðir á fjórðungnum • Fjarskiptafélög samstæðunnar í Danmörku voru sameinuð undir heitinu Síminn Danmark. • Almennu hlutafjárútboði Skipta lauk á tímabilinu. Alls óskuðu 179 fjárfestar eftir að kaupa 552.220.641 hluti í Skiptum eða sem nemur 7,49% af heildarhlutafé félagsins. Hlutabréf félagsins voru tekin til viðskipta þann 19. mars. Í kjölfarið gerði stærsti eigandi félagsins, Exista, valfrjálst yfirtökutilboð í allt hlutafé Skipta. • Í byrjun mars tilkynnti einkavæðingarnefnd slóvensku ríkisstjórnarinnar að slóvenska fjarskiptafélagið Telekom Slovenije yrði ekki selt að svo stöddu. Skipti var annar tveggja bjóðenda í félagið. • Síminn, stærsta dótturfélag samstæðunnar, hóf uppbyggingu á nýju langdrægu 3G kerfi sem mun gefa notendum kost á öflugu háhraðasambandi um allt land og á miðunum í kringum Ísland. Brynjólfur Bjarnason, forstjóri Skipta hf. “ Þetta hefur verið viðburðaríkt tímabil hjá Skiptum og ánægjulegt að góð afkoma er af reglulegri starfsemi hvort sem litið er til fjarskipta eða upplýsingatækni. Gengisþróun íslensku krónunnar hefur hins vegar verið okkur afar óhagstæð og þrátt fyrir gengisvarnir félagsins skýrir veiking krónunnar tapið sem er á tímabilinu. Framundan eru krefjandi tímar fyrir stjórnendur og starfsfólk þar sem búast má við almennt minnkandi eftirspurn á Íslandi vegna þróunar efnahagsmála. Á slíkum tímum má hins vegar oft finna tækifæri fyrir fjárhagslega sterk félög á borð við Skipti og við munum fylgjast grannt með þróun mála á markaði næstu mánuði og misseri.“ Niðurstaða í rekstri á fyrsta ársfjórðungi 2008 Reikningsskilaaðferðir Reikningsskilaaðferðir eru þær sömu og beitt var við gerð ársreiknings 31. desember 2007. Stjórn Skipta hf. hefur samþykkt árshlutareikninginn fyrir fyrstu þrjá mánuði ársins 2008. Rekstur Salan á fyrsta ársfjórðungi 2008 nam 8.865 m.kr. samanborið við 7.383 m.kr. á sama tímabili árið áður, sem er 20% aukning. Þessi aukning skýrist einkum af innkomu dönsku fjarskiptafélaganna í samstæðuna auk þess sem ágætur innri vöxtur er hjá félaginu milli ára. Rekstrarhagnaður fyrir fjármagnsliði og skatta (EBIT) nam 1.106 m.kr. sem er lækkun um 5% á milli ára. Rekstrarhagnaður samstæðunnar fyrir afskriftir (EBITDA) var 2.005 m.kr. miðað við 2.075 m.kr. árið áður. EBITDA hlutfallið er nú 22,4% samanborið við 27,9% árið áður. Skipti hefur á undanförnum misserum keypt fyrirtæki í upplýsingatæknigeiranum en sá markaður skilar að jafnaði lægra EBITDA hlutfalli en fyrirtæki í fjarskiptageiranum en á móti eru fjárfestingar að jafnaði lægri í upplýsingatæknigeiranum. Þá eiga fjarskiptafélög Skipta erlendis ekki fjarskiptanetin sem þau reka þjónustu sína á og eru því með lægri EBITDA hlutfall en þau fjarskiptafélög sem eiga og reka sín eigin fjarskiptanet. Einnig færist einskiptikostnaður að upphæð 145 m.kr. á fyrsta ársfjórðung vegna verkefna félagsins í Slóveníu. Afskriftir félagsins námu 899 m.kr. á árinu samanborið við 908 m.kr. fyrir sama tímabil 2007. Tap samstæðunnar eftir skatta nam 3.607 m.kr. samanborið við jákvæða afkomu upp á 1.432 m.kr. fyrir sama tímabil 2007. Sjóðstreymi Handbært fé frá rekstri án vaxta og skatta var 2.550 m.kr. yfir tímabilið en var 2.123 m.kr. fyrir sama tímabil árið 2007. Fjárfestingar samstæðunnar í varanlegum rekstrarfjármunum (CAPEX) námu 761 m.kr. á tímabilinu en námu 787 m.kr. fyrir sama tímabil 2007. Efnahagur Heildareignir samstæðunnar námu 100.581 m.kr. 31. mars 2008 og jukust eignir um 3% frá sama tímabili 2008 eða um 2.940 m.kr. Eigið fé félagsins nam 30.625 m.kr. í lok 1. ársfjórðungs 2008 og eiginfjárhlutfall var 30,4%. Markaðsstaða og horfur Nokkur óvissa ríkir um stöðu efnahagsmála á Íslandi, stærsta markaði Skipta, næstu mánuði og misseri. Búast má við almennt minnkandi eftirspurn og hafa Skipti hf. og dótturfélög brugðist við þeim aðstæðum með ýmsum aðgerðum sem allar miða að því ná fram enn betri rekstri félaganna. Stefna hvers félags er skýr og vel skilgreind. 3G væðing Símans er komin á fullt skrið og gera áætlanir ráð fyrir að á þessu ári muni þjónustan verða aðgengileg á 23 þéttbýlisstöðum á landsbyggðinni. Síminn vinnur nú að uppsetningu á langdrægum 3G sendum sem munu þegar fram líða stundir ná til stærra landsvæðis en hefðbundið 2G þjónustusvæði nær til í dag. Stærra þjónustusvæði er þó ekki mesti ávinningur viðskiptavina heldur þeir möguleikar sem þeim mun standa til boða í nýju háhraða farsímaneti. Háhraða gagnaflutningur í gegnum síma eða fartölvur nánast hvar sem er á landinu mun ýta undir frelsi til athafna og samskipta hjá þeim sem hafa kosið að búa eða dvelja um styttri eða lengri tíma í afskekktari byggðalögum landsins. Það hefur alltaf verið skýr stefna hjá Símanum að kerfisuppbygging standi undir framtíðarþörf markaðar til fjarskiptaþjónustu og 3G er næsta skref í slíkri uppbyggingu sem arftaki þeirrar farsímaþjónustu sem við best þekkjum í dag. Að undangengnu útboði hafa Farice hf. og Míla ehf. samið um fjarskiptaþjónustu til tíu ára. Samningurinn felur í sér að Míla veitir fjarskiptaþjónustu til Farice, vegna uppbyggingar Farice á nýja sæstrengnum Danice og stækkana sambanda á FARICE-1 sæstrengnum. Þessi samningur mun gera það að verkum að Míla mun margfalda þá flutningsgetu sem fyrirtækið hafði fyrir og gefa íslenskum fjarskiptafélögum tækifæri á að stækka sín sambönd og þá um leið efla þjónustuna við sína viðskiptavini. Á fyrsta ársfjórðungi var tilkynnt um rammasamning á milli Skjásins og SagaFilm sem tryggði Skjánum betri rekstur og góða framleiðslu á innlendu dagskrárefni fyrir SkjáEinn. Markaðshlutdeild SkjásEins var um 36% af öllum auglýsingamínútum á fyrsta ársfjórðungi. Met mánuður var í SkjáBíó í mars þegar alls voru pantaðar 154 þúsund myndir og sjónvarpsþættir. Viðskiptavinum SkjásHeims fjölgaði um tæp 6% frá áramótum og góðar endurbætur náðust á efnissamningum. Sölu auglýsinga í Símaskrá Já 2008 lauk í febrúar en stefnt er að útgáfu í maí. Einstakir notendur Já.is voru um 20% fleiri en á sama tíma árið 2007 og undir lok ársfjórðungsins heimsóttu ríflega 123 þúsund einstakir notendur vefinn vikulega og yfir tvær milljón símtala voru móttekin í þjónustunúmeri Já á ársfjórðungnum. On-Waves, dótturfélag Símans, sérhæfir sig í að bjóða farsímalausnir um borð í skemmtiferðaskipum og ferjum, ásamt fraktskipum . Félagið undirritaði á dögunum samning við MSC Cruises um GSM þjónustu um borð í skemmtiferðaskipum félagsins. Um er að ræða samning fyrir átta skemmtiferðaskip. Með þessum samningi stækkar markaðssvæði On-Waves umtalsvert, eða úr um 55 þúsund farþegum og áhafnarmeðlimum í um 88 þúsund farþega og áhafnarmeðlimi. Fyrirtæki Símans í Danmörku; Business Phone og Ventelo voru sameinuð í byrjun mars undir nýju merki - Síminn Danmark A/S. Markmið sameiningarinnar var að nýta betur styrk beggja fyrirtækja og ná fram samlegðaráhrifum félaga í líkum rekstri. Í dag starfa 60 manns hjá fyrirtækinu sem býður alhliða fjarskiptaþjónustu til lítilla og meðalstórra fyrirtækja í Danmörku. Yfir 6.000 fyrirtæki eru í viðskiptum við Símann Danmark með um 50.000 notendur. Rekstur upplýsingatæknifélagsins Sirius IT gekk mjög vel á fyrsta ársfjórðungi. Verkefnastaðan var góð og framlegð nær tvöföldast á milli ára. Reksturinn gekk mjög vel í Danmörku en mest munar um þá hagræðingu sem gerð var í Noregi og Svíþjóð á síðasta ári sem hefur skilað sér í mun betri rekstrarárangri. Almennt má segja að horfur í rekstri Sirius IT fyrir næstu mánuði séu mjög góðar. Nánari upplýsingar um samstæðuuppgjörið veita: Brynjólfur Bjarnason, forstjóri, sími 550-6003. Pétur Þ. Óskarsson, framkvæmdastjóri Samskiptasviðs, sími 863-6075. Um Skipti hf. Skipti hf. er eignarhaldsfélag um rekstur fyrirtækja á sviði fjarskipta, upplýsingatækni og afþreyingar. Innan samstæðunnar eru Síminn, Míla, Já, Skjárinn, Sensa, Tæknivörur, On-Waves og Radiomiðun. Erlend dótturfélög eru fjarskiptafélögin Aerofone í Bretlandi og Síminn Danmark í Danmörku, og upplýsingatæknifyrirtækið Sirius IT sem er með starfsemi í Noregi, í Svíþjóð og Danmörku.