Landsbanki Íslands hf. hættir viðskiptavakt með hlutabréf FL Group hf.


Landsbanki Íslands hf. sem verið hefur viðskiptavaki með hlutabréf FL Group hf.
hefur sagt upp samningi um viðskiptavakt frá og með deginum í dag vegna
mögulegrar afskráningar FL Group hf. Samningur FL Group hf. við Saga Capital
Fjárfestingarbanka og Glitni banka um að annast viðskiptavakt með hlutabréf í
FL Group fyrir eigin reikning félaganna er enn í gildi.