Hluthafafundur 365 hf. þann 1. júlí 2008


Stjórn 365 hf. boðar til hluthafafundar í félaginu sem haldinn verður á Hilton
Reykjavík Nordica þriðjudaginn 1. júlí 2008, kl. 14.00. 

Dagskrá: 

1.Tillaga um að stjórn félagsins verði falið að óska eftir afskráningu
hlutabréfa félagsins úr kauphöll OMX Nordic Exchange á Íslandi. 

2.Tillaga um að stjórn félagsins verði falið að kaupa hluti þeirra hluthafa í
félaginu er þess óska fyrir kl. 16.00 þann 11. júlí 2008. Greitt verði á
kaupverði kr. 1. 20 á hvern hlut. 

3.Tillaga um að stjórn félagsins verði heimilað í tengslum við framangreind
kaup á hlutabréfum í 365 hf. , sbr. dagskrárlið 2, að kaupa allt að 15% eigin
hluta fyrir kr. 1. 20 hvern hlut.  Heimildin skal gilda til og með 31. júlí
2008. Verði eigin hlutir í eign félagsins umfram 10% eftir viðskiptin skal
stjórn félagsins lækka hlutafé félagsins í samræmi við lög um hlutafélög til að
eigin hlutir eftir slíka hlutafjárlækkun verði ekki umfram 10% af hlutafénu. 

Atkvæðaseðlar afhendast á hluthafafundinum og verða einungis atkvæði þeirra
hluthafa sem eru skráðir í hlutaskrá kl. 11.00 þann 1. júlí talin með. 

Stjórn 365 hf.