Eimskip birtir níu mánaða uppgjör þann 11. september 2008


Hf. Eimskipafélag Íslands birtir uppgjör sitt fyrir fyrstu níu mánuði
rekstrarársins 2008, þann 11. september, eftir lokun markaða. Kynningarfundur
fyrir hluthafa og markaðsaðila verður haldinn þann 12. september, í húsakynnum
Eimskips, Sundakletti, að Korngörðum 2. Kynning á uppgjörinu hefst stundvíslega
kl. 08:30 og boðið verður upp á léttan morgunverð. 

Gylfi Sigfússon, forstjóri Eimskips mun kynna afkomu félagsins og svarar
spurningum. 

Kynningarefni fundarins verður hægt að nálgast að honum loknum á heimasíðu
Eimskips www.eimskip.is. 

Frekari upplýsingar veitir:
Halldór Kristmannsson
Framkvæmdastjóri Samskiptasviðs
Sími: 825 7221 / 525 7000
Póstfang: halldor@eimskip.is