- Moody's staðfestir lánshæfismat ríkissjóðs Íslands


Hinn 17. september staðfesti matsfyrirtækið Moody's Investors Service
lánshæfiseinkunnir ríkissjóðs Íslands í reglubundnu mati sínu (e. credit
opinion). Staðfestar voru einkunnirnar Aa1 fyrir langtímaskuldbindingar í
erlendri mynt og íslenskum krónum og P-1 fyrir skammtímaskuldbindingar í
erlendri mynt og íslenskum krónum. Horfur eru stöðugar.

Attachments

moodys.pdf