- Skilanefnd Glitnis tekur yfir hlutafé Moderna Finance AB


Skilanefnd Glitnis hefur með samkomulagi við Milestone ehf. í dag gengið að
veðum í öllu hlutafé í Moderna Finance AB dótturfélagi Milestone ehf. í
Svíþjóð. Með þessu færast yfirráð yfir íslenskum dótturfélögum Moderna Finance,
Sjóvá, Askar Capital og Avant, til skilanefndar Glitnis. Áfram er unnið að
endurskipulagningu félaganna og er samningurinn við skilanefndina liður í að
tryggja rekstur þeirra til frambúðar. Samningurinn mun ekki hafa áhrif á
daglegan rekstur íslensku félaganna. 

Samningurinn hefur ekki áhrif á söluferlið sem var hafið á erlendum eignum
Moderna Finance AB. Árni Tómasson formaður skilanefndar Glitnis segir að
yfirtaka á hlutafé Moderna Finance AB sé eðlilegt framhald á vinnu
skilanefndarinnar, eftir að áætlanir um fjárhagslega endurskipulagningu Moderna
Finance samstæðunnar náðu ekki fram að ganga. 

Nánari upplýsingar:
Árni Tómasson, formaður skilanefndar Glitnis: 898 2994