- Skipulagsbreytingar hjá Frjálsa fjárfestingarbankanum hf.


Frá því að Fjármálaeftirlitið tók ákvörðun um að taka yfir vald hluthafafundar
Spron hf. og skipa skilanefnd hefur verið unnið að framtíðarskipan Frjálsa
fjárfestingarbankans hf. sem er dótturfélag Spron hf. Ákvörðun hefur verið
tekin um að fara í umfangsmiklar breytingar á rekstri bankans.Starfsmönnum
verður fækkað um  nær helming og annar  rekstrarkostnaður lækkaður með
hagræðingu og minni umsvifum í rekstri.   Bankinn mun sjá um að innheimta  og
þjónusta útlán sín áfram og unnið verður að því að  hámarka verðmæti annarra
eigna bankans. 


Stjórn Frjálsa fjárfestingabankans  hefur komist að samkomulagi við Kristinn
Bjarnason um að hann hætti sem framkvæmdastjóri bankans.  Kristinn hefur
starfað frá árinu 1996 hjá bankanum  og gegnt starfi framkvæmdastjóra
síðastliðinn  8 ár.   Ingólfur Friðjónsson forstöðumaður lögfræðisviðs bankans
mun taka tímabundið við sem framkvæmdastjóri bankans.