- Tilkynning um skipun slitastjórnar hjá Frjálsa fjárfestingarbankanum


Héraðsdómur Reykjavíkur hefur fallist á beiðni bráðabirgðastjórnar Sparisjóðs
Reykjavíkur og nágrennis hf. (SPRON) um skipun slitastjórnar fyrir Frjálsa
fjárfestingarbankann, dags. 23. júní 2009. Slitastjórnina skipa Hlynur Jónsson,
héraðsdómslögmaður, LL.M., Jóhann Pétursson, hdl., og Hildur Sólveig
Pétursdóttir, hrl. 

Slitastjórn mun birta innköllun til kröfuhafa í samræmi við 2. mgr. 102. gr.
laga nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki.