Auglýsing um útboð ríkisvíxla RIKV 09 1116


Mánudaginn 13. júlí kl: 11:00 fer fram útboð á ríkisvíxlum með
tilboðsfyrirkomulagi hjá Seðlabanka Íslands. 

Seðlabankinn áskilur sér rétt f.h. ríkissjóðs til að samþykkja öll tilboð sem
berast, hluta eða hafna þeim öllum.  Einungis aðalmiðlurum ríkisskuldabréfa er
heimilt að gera tilboð í útboðinu en þeir annast einnig tilboðsgerð fyrir
fjárfesta. Lágmark hvers tilboðs er ein milljón króna að nafnvirði. 

Greiðslu- og uppgjörsdagur er miðvikudaginn 15. júlí 2009.

Í þessu útboði óskar Seðlabankinn fyrir hönd ríkissjóðs eftir kauptilboðum í
eftirfarandi flokk ríkisvíxla: 

Flokkur         Gjalddagi	Lánstími
RIKV 09 1116	16.11.2009	4 mánuðir

Ofangreindur flokkur verður skráður í NASDAQ OMX Norrænu kauphöllinni á Íslandi
fimmtudaginn 16. júlí 2009. 

Nánari upplýsingar veitir Björgvin Sighvatsson, lánamálum ríkisins á alþjóða-
og markaðssviði Seðlabanka Íslands, í síma 569 9633.

Attachments

frett.pdf utbodsskilmalar.pdf