Útboð ríkisvíxla RIKV 10 0315


Fimmtudaginn 12. nóvember kl: 11:00 fer fram útboð hjá lánamálum ríkisins á
ríkisvíxlum í flokki RIKV 10 0315 sem er með gjalddaga 15. mars 2010. 

Lánamál ríkisins áskilja sér rétt til að samþykkja öll tilboð sem berast, að
hluta eða hafna þeim öllum.  Einungis aðalmiðlurum ríkisskuldabréfa er heimilt
að gera tilboð í útboðinu, en þeir annast einnig tilboðsgerð fyrir fjárfesta.
Lágmark hvers tilboðs er ein milljón króna að nafnvirði. 

Útboðinu verður þannig háttað að öll samþykkt tilboð bjóðast aðalmiðlurum á
sama verði. Lægsta samþykkta verð (hæsta ávöxtunarkrafa) ræður söluverðinu. Að
öðru leyti er vísað í útboðsskilmála sem fylgja þessari frétt. 

Greiðslu- og uppgjörsdagur er mánudaginn 16. nóvember 2009.

Ofangreindur flokkur verður skráður í NASDAQ OMX Norrænu kauphöllinni á Íslandi
þriðjudaginn 17. nóvember 2009. 

Nánari upplýsingar veitir Oddgeir Gunnarsson, lánamálum ríkisins, í síma 569
9633.

Attachments

frettisl_091109.pdf aution_terms_rikv_091109.pdf bloomber_auction_process_091109.pdf