Lánadrottinn Eikar fasteignafélags hf. synjar skilmálabreytingu


Fréttatilkynning 17. nóvember 2009

Frá því að íslensku bankarnir voru teknir yfir af Fjármálaeftirlitinu hefur Eik
fasteignafélag hf. átt í viðræðum við lánadrottna sína um fjárhagsstöðu
félagsins. Markmið viðræðnanna hefur verið að leysa úr þungri greiðslubyrði
félagsins, í kjölfar breyttrar stöðu á íslenskum fasteignamarkaði. Viðræður við
einn helsta lánadrottin Eikar hafa nú siglt í strand, þar sem hann hefur synjað
félaginu um skilmálabreytingu. 

Óneitanlega kemur höfnun lánadrottins Eikar verulega á óvart, í ljósi þess að
sjóðsstreymi félagsins stendur undir öllum vaxtagreiðslum þessa árs og næstu
ára, skv. varfærinni áætlun. Þá er rétt að geta þess að bókfært eigið fé Eikar
var yfir tveir milljarðar þann 30. júní s.l. 

Þrátt fyrir sterkt sjóðsstreymi er ljóst að sökum þeirrar lækkunar á leigu sem
átt hefur sér stað á fasteignamarkaðinum, getur félagið ekki staðið við
umsamdar afborganir. Í ljósi þess að félagið er með jákvætt sjóðsstreymi var
talið víst að Eik uppfyllti helstu forsendur þess að greiðslubyrði félagsins
yrði aðlöguð í samræmi við verklagsreglur lánastofnanna. Höfnun stærsta
lánadrottins félagsins setur því óneitanlega óveðtryggðar kröfur í félagið í
uppnám, þar með talið þann skuldabréfaflokk sem skráður er í kauphöllinni. Á
meðal eigenda slíkra krafna eru íslensku lífeyrissjóðirnir. 

Frá upphafi hefur Eik rekið mjög varfærnislega fjárfestingastefnu. Rekstur
félagsins gengur út á að kaupa og leigja fasteignir, en frá árinu 2006 dró
verulega úr fasteignakaupum félagsins þar sem forsvarsmenn félagsins töldu að
ekki væri inneign fyrir verðþróun markaðarins, eins og síðar kom á daginn.
Félagið hefur jafnframt forðast erlendar lántökur og er meginþorri skulda
félagsins í íslenskum krónum. Markvisst hefur verið unnið að því að draga úr
rekstrarkostnaði félagsins á undanförnum misserum, en hafa ber í huga að stór
hluti rekstrarkostnaðarins er fastur kostnaður sem á rætur sínar að rekja beint
til rekstrarins. Þrátt fyrir erfitt markaðsumhverfi hefur útleiga fasteigna
félagsins gengið framar vonum og hafa skráðar fyrirspurnir til félagsins aldrei
verið fleiri. 

Áætlanir félagsins hafa jafnframt verið mjög varfærnislegar. Þegar horft er til
10 mánaða uppgjörs félagsins skilaði Eik inngreiddum tekjum upp á 61 milljón
umfram áætlun eða upp á 4,6 prósent. Eignasafn Eikar var metið á 19,7 milljarða
í sex mánaða uppgjöri 2009 og reiknaði félagið sér ekki viðskiptavild. Á sama
tíma námu vaxtaberandi skuldir félagsins 17,4 milljörðum en 11,8 milljarðar
hvíla hjá helsta lánadrottni Eikar. 

Í ljósi stöðunnar munu forsvarsmenn fyrirtækisins leita leiða, í samráði við
eigendur félagsins, til þess að reyna að koma í veg það tjón sem kann að
myndast hjá óveðtryggðum kröfuhöfum fari félagið í þrot. 

Frekar upplýsingar gefur:
Garðar Hannes Friðjónsson
Forstjóri
S. 861-3027