Ársreikningur 2009


Í dag 15. apríl 2010 var ársreikningur Stykkishólmbæjar 2009 tekinn til fyrri
umræðu. Eins og sveitarstjórnarlög kveða á um, skal fjalla um ársreikninginn á
tveimur fundum í sveitarstjórn. Seinni umræða verður 20. maí n.k. 

Í reglugerð nr. 944/2000, um bókhald og ársreikninga sveitarfélaga, sem tók
gildi 1. janúar 2001, eru ákvæði um reikningsskil sveitarfélaga. Þar er gert
ráð fyrir að sveitarfélög hagi bókhaldi sínu og reikningsskilum í samræmi við
ákvæði laga um bókhald nr. 145/1994 og ársreikninga nr. 144/1994 að svo miklu
leyti sem sveitarstjórnarlög mæla ekki fyrir á annan veg eða reglugerðir settar
á grundvelli þeirra.  Ársreikningar sveitarfélaga skulu byggðir á almennum
reikningsskilaaðferðum. 

Ársreikningur Stykkishólmsbæjar fyrir árið 2009 byggir á sömu
reikningsskilaaðferðum og árið áður í samræmi við framangreind lög og reglur. 

Helstu lykiltölur: Sjá viðhengi.


Nánari upplýsingar veitir: Þór Örn Jónsson, bæjarritari,  í síma 433-8100

Attachments

stykkisholmsbr 2009.pdf frettatilkynning 2009.pdf