Landsvirkjun og Evrópski fjárfestingarbankinn undirrita nýjan lánasamning


Landsvirkjun og Evrópski fjárfestingarbankinn (EIB) skrifuðu í dag, 23. mars, undir nýjan lánasamning að fjárhæð 70 milljónir Evra eða að jafnvirði um 11,3 milljarðar króna.

Lokagjalddagi lánsins er á árinu 2031 og ber lánið millibankavexti auk hagstæðs álags. Í lánasamningnum er ákvæði um lágmarks lánshæfiseinkunn ríkissjóðs.

Lánið er mikilvægur áfangi í fjármögnun Búðarhálsvirkjunar en Landsvirkjun undirritaði sambærilegt lán frá Norræna fjárfestingarbankanum þann 16. mars síðast liðinn að fjárhæð 70 milljónir Bandaríkjadollara. Áfram er unnið að því að klára fjármögnun Búðarhálsvirkjunar og er gert ráð fyrir því að henni ljúki innan skamms.

Hörður Arnarsson, forstjóri Landsvirkjunar:

„Það er ánægjulegt að með þessari lánveitingu EIB er fjármögnun Búðarhálsvirkjunar langt komin.  Lánveitingar NIB og EIB endurspegla mikið traust á fyrirtækinu“.

 

Nánari upplýsingar veitir Ragna Sara Jónsdóttir, yfirmaður samskiptasviðs, í síma 515-9088, netfang: sara@lv.is.