Árshlutareikningur fagfjárfestasjóðsins OFAN VÍ ársins 2015


Fagfjárfestasjóðurinn OFAN VÍ sem er í rekstri Stefnis hf. gaf út skuldabréf tekin til viðskipta hjá NASDAQ OMX Iceland hf. árið 2012.

  • Enginn hagnaður varð á rekstri sjóðsins á tímabilinu samkvæmt rekstrarreikningi.
  • Hrein eign sjóðsins nam einni milljón króna samkvæmt efnahagsreikningi.
  • Árshlutareikningurinn var kannaður af Deloitte ehf. í samræmi við alþjóðlega endurskoðunarstaðla. Það er álit endurskoðanda að árshlutareikningurinn gefi glögga mynd af afkomu sjóðsins á fyrri helmingi ársins 2015, efnahagi hans 30. júní 2015 og breytingu á hreinni eign sjóðsins á fyrri helmingi ársins 2015, í samræmi við lög um ársreikninga og reglur um reikningsskil rekstrarfélaga verðbréfasjóða sem settar eru af Fjármálaeftirlitinu

Hægt verður að nálgast árshlutareikning sjóðsins frá og með deginum í dag á heimasíðu Stefnis hf. www.stefnir.is

Nánari upplýsingar um árshlutareikning fagfjárfestasjóðsins OFAN VÍ veitir Flóki Halldórsson, framkvæmdastjóri Stefnis, í síma 444 7464.

 


Attachments

20150630_OFAN VÍ_SIGN.pdf