Í 43. viku 2015 keypti Reitir fasteignafélag hf. 261.297 eigin hluti fyrir 21.957.108 kr. eins og hér segir:
Dagsetning | Tími | Keyptir hlutir | Viðskipta-verð | Kaupverð | Eigin hlutir eftir viðskipti |
19.10.2015 | 14:42 | 9.248 | 82,60 | 763.885 | 4.785.277 |
20.10.2015 | 10:09 | 2.049 | 82,10 | 168.223 | 4.787.326 |
22.10.2015 | 15:01 | 250.000 | 84,10 | 21.025.000 | 5.037.326 |
Samtals | 261.297 | 21.957.108 |
Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem var hrint í framkvæmd 19. júní 2015, sbr. tilkynningu til Kauphallar þann 18. júní 2015.
Reitir hafa nú keypt samtals 5.037.326 hluti í félaginu sem samsvarar 14,82% af þeim eigin hlutum sem að hámarki verða keyptir samkvæmt áætluninni. Kaupverð hinna keyptu hluta nemur samtals 360.174.295 krónum. Reitir eiga nú samtals 0,67% af heildarhlutafé félagsins.
Samkvæmt endurkaupaáætluninni verða að hámarki keyptir 34.000.000 hlutir og fjárhæð endurkaupanna verður aldrei hærri en 2.300 milljónir króna. Framkvæmd endurkaupaáætlunar lýkur á aðalfundardegi félagsins 2016 en þó aldrei síðar en þann 29. febrúar 2016 ef kaupum samkvæmt áætluninni verður ekki lokið áður. Endurkaupaáætlunin er framkvæmd í samræmi við hlutafélagalög nr. 2/1995 og viðauka við reglugerð nr. 630/2005.