Helstu upplýsingar:
-
Vöru- og þjónustusala á F3 nam 3.019 mkr (18,6% tekjuvöxtur samanborið við F3 2014) og 9.669 mkr á fyrstu níu mánuðum ársins (17,1 % tekjuvöxtur samanborið við fyrstu níu mánuði 2014) [F3: 2014:2.545 mkr]
-
Framlegð nam 828 mkr (27,4%) í F3 og 2.465 mkr (25,5%) á fyrstu níu mánuðum ársins [F3 2014: 669 mkr (26,3%), fyrstu níu mánuðir 2014 2.171 mkr (26,3%)]
-
Heildarhagnaður í F3 nam 82 mkr og 193 mkr á fyrstu níu mánuðum árins [F3 2014: 12 mkr, fyrstu níu mánuðir 2014: 137 mkr]
-
EBITDA nam 240 mkr (8%) í F3 og 693 (7,2%) á fyrstu níu mánuðum ársins [F3 2014: 188 mkr (7,4%), fyrstu níu mánuðir 2014: 586 (7,1%)]
-
Jákvæð rekstrarafkoma var hjá öllum félögum samstæðunnar á fyrstu níu mánuðum ársins.
- Nýherji flytur hýsingarþjónustu í gagnaver Verne Global
Finnur Oddsson, forstjóri:
„Rekstur Nýherja og dótturfélaga á þriðja ársfjórðungi og það sem af er ári hefur gengið vel. Tekjur og afkoma eru umfram áætlanir og töluvert betri en í fyrra. Við erum ánægð að sjá kraftmikinn tekjuvöxt á milli ára, sem hefur þríþættar skýringar. Í fyrsta lagi er hann til marks um almennt aukin umsvif í hagkerfinu. Í öðru lagi þá skilar nýtt og skilvirkara skipulag okkur tilætluðum árangri. Í þriðja lagi þá er mikill áhugi erlendis á hugbúnaði sem dótturfélög Nýherja hafa þróað undanfarin misseri, einkum tímaskráningarlausnum frá Tempo og bankalausnum frá Applicon á Íslandi og í Svíþjóð. Öll félög samstæðunnar skila ágætri afkomu og eru horfur í rekstri þeirra góðar.“
Nánari upplýsingar
Finnur Oddsson forstjóri í síma 862-0310 eða fo@nyherji.is og Gunnar Petersen framkvæmdarstjóri fjármálasviðs í síma 825-9001 eða gp@nyherji.is.