Nýherji hf. - Fjárfestakynning félagsins 26. október nk. vegna 3. ársfjórðungs 2017.

Birting uppgjörs 3. ársfjórðungs verður þann 25. október 2017 eftir lokun markaða.


Nýherji hf. heldur kynningarfund fyrir hluthafa og fjárfesta vegna 3. ársfjórðungs félagsins fimmtudaginn 26. október næstkomandi.

Á fundinum mun Finnur Oddsson forstjóri kynna afkomu félagsins og svara fyrirspurnum.

Kynningin fer fram í ráðstefnusal Nýherja á 1. hæð, að Borgartúni 37 og hefst klukkan 08:30.

Hægt verður að fylgjast með netstreymi af fundinum, sem má nálgast hér :

http://www.nyherji.is/nyherji/fyrirtaekid/fjarfestar/fjarfestafrettir/

Nánari upplýsingar

Finnur Oddsson forstjóri í síma 862-0310 eða fo@nyherji.is og Gunnar Petersen framkvæmdastjóri fjármálasviðs í síma 825-9001 eða gp@nyherji.is.