Leiðrétting - Arion banki lýkur víxlaútboði - Frétt birt: 2017-10-17 19:19:36 CEST


Leiðrétting - Tilboðum í 6 mánaða víxilinn var tekið fyrir 560 milljónir, ekki 540 milljónir.

 

Arion banki hf. lauk í dag, þriðjudag, útboði á víxlum til tólf, sex og fimm mánaða.  Í heild bárust 14 tilboð upp á 3.820 milljónir kr. og var tilboðum tekið fyrir 560 milljónir kr.

Í heild bárust 5 tilboð í 5 mánaða víxilinn að fjárhæð 600 milljónir kr., á flötum vöxtum á bilinu 4,33% - 4,40%.  Öllum tilboðum var hafnað að þessu sinni.

Í heild bárust 7 tilboð í 6 mánaða víxilinn að fjárhæð 3.020 milljónir kr., á flötum vöxtum á bilinu 4,31% - 4,40%.  Samþykkt voru tilboð að nafnverði 560 milljónir á 4,34% flötum vöxtum.

Í heild bárust 2 tilboð í 12 mánaða víxilinn að fjárhæð 200 milljónir kr., á flötum vöxtum á bilinu 4,50% - 4,65%. Öllum tilboðum var hafnað að þessu sinni.

Stefnt er að því að víxlarnir verði teknir til viðskipta á Nasdaq Íslandi 20 október.

Nánari upplýsingar veitir Haraldur Guðni Eiðsson, forstöðumaður samskiptasviðs Arion banka haraldur.eidsson@arionbanki.is s: 856-7108.